Léttara hjal
Sjáið þið einhvern mun?
Ekki það nei? Gott mál. Ég varði allri helginni í að finna heildarlausn á bloggviðmóti mínu. Sá að það gekk ekki lengur að handkóða hverja einustu skipun fyrir hvert einasta blogg, uppfæra flokkasíður jafnóðum og skella fyrirsögn á blogg.html handa rassmolum að kjamsa á... Þessi fyrirhöfn öll var farin að valda bloggfælni.
Laugardagurinn fór í að finna út að kerfið á blogger.com var ekki málið. Ég geri einfaldlega of stífar kröfur um að þetta lúkk hér fái að halda sér og Bloggerinn réði ekkert við það.
Gærdagurinn fór í Movable Type.
Hvílíkt dásemdartól sem það er. Skil ekkert í hvað ég var hræddur við þetta kerfi, hélt að það væri svo flókið að setja það upp á server og erfitt að skilja templeitin. En nei, þetta er allt frekar augljóst. Og ég stóð varla upp allan sunnudaginn og raknaði úr leiðslurotinu löngu eftir miðnætti, búinn að laga sniðmátin að vefumhverinu mínu að stóru leyti.
Og nóttin varð svefnlítil. Staðreyndin er raunar sú að ég bloggaði mest af þessu hér klukkan fimm í nótt eftir að hafa bara legið og planað og skiplagt og pælt. Frjósemi hugans minnir á gamla daga.
En þetta er semsagt komið í gagnið og frábært að geta hoppað inn á formsíðu og fyllt út í gluggum þegar bloggþörfin kemur yfir. Það eru þó allmargir lausir endar, t.d. hvað snertir gamlar færslur, flokka og annað. Geri ráði fyrir að kippa því smám saman í liðinn.
Og þetta mun tákna breytingar, því þungu "vönduðu" færslurnar láta aðeins undan síga fyrir styttri og alvörulausari smáskömmtum. Vefarinn kemur t.d. aftur sterkur inn, en nú sem einn flokkur á þessum bloggvöllum. Annar nýr flokkur er dýrðin, örstuttar observasjónir á nánasta umhverfi í stíl við vasabækur Péturs Gunnarssonar.
Njótið. Ég ætla að halda áfram að breinstorma.


