Þriðjudagur 26. ágúst 2003

Röska lögga

Maður hringir í lögreglu, tilkynnir andlát ungrar konu og er handtekinn. Hvað á það að fyrirstilla? Væri ekki tilvalið komast að því fyrst hvort hún hafi látist af eðlilegum orsökum áður en rokið til og menn handteknir í allar áttir?

Birgir Baldursson kl. 12:32 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Þetta var í Skuggahverfinu. Nafnið eitt segir allt sem þarf. Þar að auki er slúður frá nágrönnum nóg sönnunargögn - þetta er borðleggjandi.

Nei, Birgir, ákvarðanir og túlkun á íslenskum hegningarlögum fer ekki fram í réttarsalnum, þó embættismenn geri allt til að fá fólk til að trúa því. Nei, þyngdarpunkturinn liggur annars staðar. Ákvarðanir í öllum stærri málum, hvort sem það er spurning um að kæra eða hefja rannsókn, eru leiddar til lykta á innsiglaðri skrifstofu ríkissaksóknara, hinar raunverulegu ákvarðanir og niðurstöður eru teknar á lokuðum fundum sem hafa það eitt að markmiði að troða ekki á tær hinna stóru og fínu, en jafnframt sönnu glæpamanna þjóðfélags vors. Sagði einhver olíumálið? Það sem fyrir augu okkar ber í Sakadómi Reykjavíkur er næstum eingöngu fólk úr lægstu þrepum þjóðfélags vors.

´Fyrst þú ert farinn að lesa Vísir, býst ég við að þú sért ekki lengur í Danaveldi.Hefur þú annars prófað að skýra orðið "Danaveldi" út fyrir einhverjum Dana? Það hlægja allir af þesu orði, en það er nú einu sinni barn síns tíma.

Gísli 26.08.2003 klukkan 12:56#

- - - 0 0 0 - - -
Ég hlusta á Rás 1 gegnum netið, hér við vinnu mína. Unaðsleg stöð.

birgir.com 26.08.2003 klukkan 13:07#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com