Fimmtudagur 28. ágúst 2003

Prestarusl

Ég held að prestadjobbið hljóti að vera eins sú mesta óþurftaratvinnugrein sem fyrirfinnist.

Fyrir það fyrsta er þetta fólk menntað í yfirnáttúru og þrælasiðfræði þess sem spyr ekki um réttmæti hegðunar sinnar heldur leitar svara í bók. Síðan hafa prestarnir það sem aðalstarfa að þröngva þess konar hugsunarhætti yfir á alla alþýðu manna og draga hana þannig niður á lægra siðferðisplan en efni standa til.

"Já, en þeir inna nú líka af hendi alls kyns félagsleg störf, tala á milli hjóna og aðstoða sjúka, tilkynna andlát og þar fram eftir götum," segið þið nú.

Sjáið þið þetta sem eitthvað jákvætt? Ég sé þetta sem vandamál. Af hverju er ekki fagmenntuðu fólki gert að starfa við þetta sem þið teljið upp og kostað af ríkinu? Af hverju er verið að ráða yfirnáttúrufræðinga í þetta?

Ég man þegar snjóflóðin urðu á Súðavík og Flateyri. Útvarpið var ólatt við að auglýsa að hjá Rauða krossinum mætti fá áfallahjálp hjá sérmenntuðu fagfólki og prestum. Hvað voru þeir að gera þarna, vomandi yfir harmi slegnu fólki eins og einvherjir sorgarpervertar? Sögðu þeir fólkinu að þetta væri allt í þessu fína af því þetta væri vilji Guðs, eða að allt dána fólkið væri nú komið til himna?

Ég bara spyr.

Í Kaupmannahöfn starfar prestur við að aðstoða fólk sem leita þarf lækninga hjá dönskum sjúkrastofnunum. Hann fór reyndar í frí nýlega og enginn var til að sinna starfinu á meðan.

Hvað ef einhver hefði nú dáið? Áttu aðstandendur bara að standa og grenja þarna á göngunum? Og af hverju í fjáranum er prestur með þetta starf með höndum en ekki einhver sem til þess er fallinn að sinna því?

Birgir Baldursson kl. 14:25 - efni: trúmál -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com