Þriðjudagur 02. september 2003

Dauðinn eftir vinnu

Ég hef 6 mánaða reynslu í blaðamennsku. Vann aðallega við að finna skondnar hliðar á atburðum helgarinnar í dálki sem hér Lífið eftir vinnu, auk þess að taka viðtöl við allra handa lið, börn jafnt sem borgarstjóra.

Sá eini sem neitaði mér um viðtal var idolið mitt Pétur Gunnarsson. Sagðist ekki svara stöðluðum spurningum þegar ég ætlaði að leggja fyrir hann þrautina Hvar varstu og nefna svo stundina þegar fyrsta bíómyndin fór í loftið hjá ríkissjónvarpinu. Steindór Hjörleifsson svaraði því svo með prýði, enda sá hann sjálfur um að koma henni í loftið.

Það var gríðarlegt vinnuálag þarna á þessum snepli, undirmannað og menn þurftu jafnan að dúsa langt fram á kvöld. Ekki var því mikið um líf eftir vinnu hjá manni sjálfum. Maður var einfaldlega úrvinda.

Og allt vinnuálagið varð til þess að eftir viku var ég kominn með geggjaðar sjóntruflanir, gat ekki fókuserað á nokkurn hlut. Þegar ég fór til augnlæknis í mælingu fékk hann margar mismunandi niðurstöður um nærsýni mína í einni og sömju sessjóninni. Og ég notaði bæði linsurnar mínar og gleraugun í einu meðan ég var að komast yfir þetta.

Sérlega kaldhæðnislegt í ljósi þess að tímaritið sem ég skrifaði í hét Fókus.

Birgir Baldursson kl. 10:27 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com