Óþol
Ég er næmgeðja listamaður. Og slíkt fólk er gjarna uppfullt af óþoli í garð hins og þessa. Hjá mér eru það þættir á borð við trúarbrögð og almennan plebbaskap.
Ástundun trúarbragða á almannafæri fer sérdeilis í mínar fínustu. Ég hef enda komist að þeirri bjargföstu niðurstöðu að þar sé ekki um neitt annað að ræða en afkáralega hegðun í krafti óraunsærra hugmynda um veröldina.
Og ekki batnar það þegar maður áttar sig á hve hættulegar þær hugmyndir geta verið.
Mitt viðkvæma listamannseðli knýr mig til að hlusta á Rás 1 ef ég hef opið fyrir útvarp á annað borð. Þar á bæ eru hlutirnir yfirleitt ekki gersamlega menningarsnautt blaður, auk þess sem "leiknar" auglýsingar eru víðs fjarri.
Þær eru það plebbalegasta í heimi.
Þessar "frjálsu" útvarpsstöðvar eru upp til hópa móðgun við hvern hugsandi mann. Ekki nóg með að dagskrárgerðin sé yfirgengilega innantóm heldur eru þau ávörp sem beint er til manns í þessum hönnuðu auglýsingum miðuð við lægsta hugsanlega samnefnara. Maður er einfaldlega trítaður eins og fimm ára af þeim sem þær gera. Raddblær jafnt sem innihald... af hverju í ósköpunum er verið að gera heiminn leiðinlegri en hann þarf að vera?
Það versta er að fólk virðist upp til hópa hlusta á þennan viðbjóð og litast svo af honum. Og þá fyrst fer að verða vonlaust að hafast við í þessum heimi þegar hann er allur farinn að sánda eins og frjáls útvarpsstöð, yfirborðs- og tilgerðarlegur.
Þetta eru fremur leiðinlegir tímar.
:( birgir.com 05.09.2003 klukkan 15:51#



Svo hefur hann samið slatta af þessum "verkum" sjálfur, fjandakornið ég verð að benda honum á þennan pistil.
Matti Á. 05.09.2003 klukkan 15:41#