Laugardagur 20. september 2003

Fyrirmyndarsamræða

birgir.com @ 19/09 13.18

Ó hvað er gott að sjá að þið eruð lausir við alla hjátrú þegar kemur að svona nútíma Biblíusögum. Þið eruð sannir skeptíkerar og vantar ekki nema herslumuninn að þig takið hinar gömlu, þessar um upprisu og himnaför Jesú sömu tökum. Eða með hvaða rökum getið þið annars haldið því fram að sögurnar í Biblíunni séu eitthvað sannari og réttari en svona nútíma "lofsagnir"?

Vona að ykkur finnist ég ekki vera að leiða umræðuna afvega þótt ég spyrji.

Þorkell @ 19/09 14.29

Svo ég tali fyrir sjálfan mig Birgir.com þá hef ég aldrei litið svo á að sögurnar í Biblíunni séu eitthvað hlutlausari eða meira sagnfræðirit en þessi heimildarmynd um Billy Graham. Biblían er ekki sagnfræðirit og það er rangt að lesa hana sem slíka.

Það er einmitt vandi Guðfræðinga. Höfundur efnissins sem þeir vinna með er ekki hlutlaus. Þá hjálpar það ekki að atburðirnir voru ekki skráðir niður samstundis heldur nokkru eftir að þeir gerðust.

Og ef við snúum okkur að Gamla testamentinu þá er þar helling af goðsögulegu efni sem hefur líklega verið fengið að láni frá nágrannaþjóðum Hebrea. Það breytir því hins vegar ekki að það er alveg svakalega gaman að rannsaka Biblíuna og reyna að rýna á bak við textann, að því marki sem það er hægt.

birgir.com @ 19/09 15.13

Því get ég vel trúað. En sérðu það ekki sem neitt vandamál að þessu skuli öllu haldið fram sem einhverjum sannleik? Inntak kristinnar kirkju gengur út á að upprisan sé staðreynd og án hennar er grundvöllur kirkjunnar brostinn.

Það er kannski þess vegna sem þú ert annarrar trúar?

Þakka annars gott svar.

Þorkell @ 19/09 15.28

Ég hef alltaf átt erfitt með að skrifa undir upprisuna og það er vissulega ein ástæðan fyrir því að ég er annarar trúar. Ég á auðvelt með að skrifa undir hana sem táknræna, en erfiðara með það sem bókstaflega. Annars held ég að það væri best að einhver kristinn svari þér sjálfur um upprisuna og sagnfræði.

Binni @ 19/09 18:12

Kæri Birgir, það er í raun ekki til neitt gott svar við þeirri spurningu. Ætli sú innræting sem maður hlaut í æsku ráði ekki bara úrslitum um það hve jákvæðar tilfinningar maður hefur í garð Biblíunnar. Og það er svo miklu auðveldara að beita efa sínum á atburði samtíðarinnar en það sem búið er frá fyrstu tíð að telja manni trú um að sé sannleikurinn.

birgir.com @ 19/09 23.24

Þakka ykkur fyrir skýr og góð svör, félagar. Ég var einmitt á höttunum eftir að fá að vita hversu skynsamleg rökin fyrir að aðhyllast Biblíuna geta orðið. En þar sem þú ert nú guðfræðingur, Binni, finnst þér þá ekki kominn tími til að þú meðhöndlir trúarritið á sama gagnrýna háttinn og þú beitir á daglega lífið?

Binni @ 20/09 03.03

Jú, þú segir nokkuð, Birgir. Biblían á auðvitað ekki að vera yfir slíka gagnrýni hafin, en hér held ég að sé bara of mikið í húfi, t.d. ævistarf okkar sem valið höfum að fylgja því sem þarna er boðað. Og skynsamleg rök eru grátlega fá þegar kemur að kristindómi eða bara trúarbrögðum í heild.

Samræða sem þessi er alveg pörfekt, heiðarleg og málefnaleg. Hún gæti í raun varla verið ólíkari þessari andstyggð hér. Þarna fara guðfræðingarnir fljótt út af sporinu og byrja í hæðnistón að gera manni upp skoðanir og innræti, allt eftir hentugleikum. Binni talar til manns í þriðju persónu í stað þess að ávarpa mann beint, og báðir reyna þeir að troða viðmælanda sinn í svaðið með auvirðulegu spotti:

Binni:

"Maður hugsar upphátt á Netinu um saklaust atriði eins og Billy Graham og þá er birgir.com mættur með ljáinn og vill ræða um hinstu rök tilverunnar! ;-)"

Þorkell:

"Mér finnst eins og ég hafi heyrt þetta allt áður... hvar var það aftur? Jú alveg rétt. Síðast þegar Birgir.com kom í heimsókn. ;-)"

Þetta væri svosem allt í lagi ef það kæmi eitthvað líka sem snýr að spurningum mínum, sem eru grundvallarspurningar um undirstöður kristinnar trúar, en þessir menn treysta sér ekki til þess.

Það virðist sem þeir geti ekki beðið eftir að losna við mig.

Birgir Baldursson kl. 12:12 - efni: trúmál -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com