Sunnudagur 21. september 2003

Til hamingju RÚV

Besta vinkona mín og fyrrum sambýliskona hefur verið ráðin sem þulur á Rás 1. Þetta eru frábærar fréttir, ekki síst í ljósi þess að hún böstaði um það bil 80 aðra umsækjendur um starfið.

Og ég verð að hrósa Ríkisútvarpinu fyrir fagleg vinnubrögð við þessa ráðningu, því útilokað er að um nokkur ættar- eða vinatengsl hafi verið að ræða. Litla skagastelpan kemur einfaldlega beint úr íslenskri lágstétt, er dóttir einstæðrar þvottakonu sem þurft hefur að berjast fyrir tilvist sinni hörðum höndum. Hér eru það alfarið verðleikarnir sem réðu úrslitum.

Konan hefur einfaldlega ómótstæðilega upplestrarrödd.

Til hamingju Sunna og RÚV, þið fenguð bæði það besta sem ykkur gat hlotnast!

Birgir Baldursson kl. 20:39 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com