Miðvikudagur 24. september 2003

Hvað er menning?

Þetta er mjög algeng spurning og maður hefur heyrt alls konar svör við henni. Ég held þó að þetta svar hér fari nærri því að skigreina þetta:

Menning er væntanlega öll sú hegðun sem gerir okkur að mönnum, þ.e. er sérstök fyrir þessa dýrategund. Ef við notum þessa skilgreiningu fellur tónlist, dans, leikhús, borðhald, kurteisisvenjur, tíska, bókmenntir og fjölmargt annað undir hugtakið.

Aftur á móti falla athafnir á borð við át, það að ganga örna sinna (sem við gerum reyndar með menningarlegum hætti ef við notum klósett) hlaup, veiðar, og slagsmál ekki undir menningu, enda skilur slíkt okkur ekki frá öðrum tegundum.

Mér þykir þessi skilgreining mun betri en það sem orðabókin segir:

1
• þroski mannlegra eiginleika mannsins, þjálfun mannsins, þjálfun hugans, verkleg kunnátta, andlegt líf, sameiginlegur arfur (venjulega skapaður af mörgum kynslóðum)

2
• rótgróinn háttur, siður

Hvað segið þið?

Birgir Baldursson kl. 18:11 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Ég veit það nú ekki alveg. Hlaup og slagsmál hljóta að flokkast sem menning þegar við höfum gert þau að íþróttum. Ætli sé yfirhöfuð nokkuð sem við gerum sem fellur ekki undir menningarhugtakið samkvæmt þessari skilgreiningu?

eva 24.09.2003 klukkan 20:52#

- - - 0 0 0 - - -
Að standa eða sitja úti í móa og spræna. Jú og öll sú aggressjón og barsmíðar sem menn sýna af sér utan íþróttavallanna. Að ganga. Að hafa samfarir, nema þegar fólk hrópar "ég kem, ég kem" (gerir það einhver annars?), það gera dýrin ekki. Svona mætti lengi tína til eitthvað, held ég.

birgir.com 24.09.2003 klukkan 21:02#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com