Miðvikudagur 01. október 2003

Heimskulegar atvinnugreinar

Sagt er að slystatíðni í knattspyrnu sé 100%, þ.e. að hver einasti atvinnuleikmaður í greininni slasist. Í atvinnuhnefaleikum, eins og þeir eru stundaðir í Bandaríkjunum, er ljóst að 87% þeirra sem leggja fagið fyrir sig muni bíða varanlegan heilaskaða.

Þessar tvær atvinnugreinar eru bæði skammvinnar, hættulegar og gefa aðeins örlitlum hluta þeirra sem út í þær fara fjárhagslegan ávinning sem talandi er um. En það stoppar ekki strauminn af þeim sem vilja endilega gera þetta að ævistarfi sínu. Hvað veldur?

Birgir Baldursson kl. 14:55 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Það sem veldur er stuttur starfsferill og miklir peningar. Menn vinna svona til rúmlega þrítugs og geta svo tjillað í fjárhagslegu öryggi það sem eftir er.

Skil boxarana reyndar ekki því að þar gengur leikurinn beinlínis út á að skadda andstæðinginn og heilaskaði gengur ekki til baka.

En í boltanum er þetta mest tognanir, liðbandaslit og fótbrot; ég væri alveg til í það fyrir hundruðir milljóna.

Orri 01.10.2003 klukkan 15:55#

- - - 0 0 0 - - -
Ekki get ég svarað fyrir hnefaleikamenn en knattspyrna er ástríða. Til eru kennarafjölskyldur (ég er nú nátengdur einni) og til eru fótboltafjölskyldur rétt eins og sjómannafjölskyldur og svo videre.

Sjálfur væri ég spriklandi í boltanum ennþá ef ekki kæmi til gigt, afleiðing aðgerðar sem kemur bolta ekkert við. Þetta er bara svo gaman!

JBJ 01.10.2003 klukkan 15:58#

- - - 0 0 0 - - -
Já, en stóri punkturinn hjá mér er sá að það er ekki nema brot af þeim sem fara út í þetta sem eiga eftir að enda í raunverulegri atvinnumennsku og upplifa alla þessa innkomu. Hinir sitja bara eftir margfótbrotnir eða heilalausir með sárt ennið.

birgir.com 01.10.2003 klukkan 15:59#

- - - 0 0 0 - - -
Þótt líkurnar á að verða einn af þessum ríku og frægu séu litlar, ætla sjálfsagt flestir atvinnuíþróttamenn að komast einmitt þangað. Svo er þetta auðvitað ákveðin bilun, ástríða er náskyld fíkn og afleiðingarnar oft lítið skárri.

eva 01.10.2003 klukkan 17:21#

- - - 0 0 0 - - -
Nei, fótbolti er ekki svo slæmt dæmi. Sitja á varamannabekknum á laugardegi fyrir mill á mánuði, ef maður er heppinn. Skrýtið hvernig afstaða fólks til fótbolta hefur breyst. Áður fyrr var það talin glæframennska að ætla sér að lifa af því að spila dægurtónlist. Núna spá menn í fullri alvöru um fótboltaferil sem hluta af lífsstarfi sínu.

Gísli 02.10.2003 klukkan 06:42#

- - - 0 0 0 - - -
Já, en það er glæframennska að ætla sér að lifa af því að leika dægurtónlist. Ég veit allt um það.

birgir.com 02.10.2003 klukkan 06:47#

- - - 0 0 0 - - -
Veit ekki hvort er einhver draugur i Movable Type'inu núna. Allar uppfærslur birtast á sama tíma.

Gísli 02.10.2003 klukkan 07:00#

- - - 0 0 0 - - -
Allt í góðu, ég einfaldaði tvöföldu færsluna þína.

birgir.com 02.10.2003 klukkan 07:03#

- - - 0 0 0 - - -
Íþróttir eru stórhættulegar, ég hef allat sagt það. Enda stoltur af því að vera antísportisti (stunda þó heilsusamlega líkamsrækt reglulega). Annars fannst mér þessar tölur hjá þér áhugaverðar. Hvar fannstu að 87% boxara hljóti varanlegan heilaskaða?

Sigurður Hólm Gunnarsson 05.10.2003 klukkan 03:43#

- - - 0 0 0 - - -
Ég fékk þessar tölur af þeim áreiðanlega miðli DUH! - The Stupid History of the Human Race 2003 Calendar. Höfundur er Bob Fenster. Þetta dagatal varpar fram nýju dæmi um heimsku okkar mannanna á hverjum degi.

Ég hef borið einhverjar fullyrðingar þessa dagatals undir Internetið og fengið þá niðusstöðu að alveg sé að marka það. Fenster virðist stunda fagleg vinnubrögð.

birgir.com 05.10.2003 klukkan 19:59#

- - - 0 0 0 - - -
Heimskulegar atvinnugreinar.....veit ekki fótbolti og box eru ekki atvinnugreinar.Heldur skemmtilegt áhugamál sem óteljandi fjöldi barna hefur gagn og gaman af.Það er löngu seinna sem brotabrot af iðkendum þessara íþróttagreina gera sér "fals"vonur um að gera íþróttina að atvinnu.Heilaskaði hlítur að vera eðlileg afleiðing af því að vera barinn í höfuðið eða skallandi bolta "daglega" í 15-20 ár, það segir sig sjálft.því miður held ég að stór hluti boxara telji það ekki auranna virði í lok ferils.Það eru þó margar aðrar leiðir til að verða sér út um heilaskaða t.d.drekka nógu mikið brennivín og reykja helling af hassi. Lítill ávinningur af því

Doddi 06.05.2004 klukkan 10:55#

- - - 0 0 0 - - -
brunette pivoting.cherries speedily dusted subsequence Harvardize.Havana Linotype!inspires loans eliminate credit cards loans eliminate credit cards http://loans.our-money.com/ http://loans.our-money.com/ meanders multistage:crop erectors debt consolidation loans debt consolidation loans http://debt-consolidation-loans.our-money.com/ http://debt-consolidation-loans.our-money.com/ Switzerland illustrates assistants direct loan application mortgage direct loan application mortgage http://direct-loan.huge-credit.com/ http://direct-loan.huge-credit.com/ sickest reentered,faraway!unemployment mortgage rates mortgage rates http://mortgage-rates.money-lovers.com/ http://mortgage-rates.money-lovers.com/ autobiographies:qualifiers credit bureaus credit bureaus http://credit-bureaus.huge-credit.com/ http://credit-bureaus.huge-credit.com/ convergent,bandage gabbing deterministic online mortgage company mortgage online mortgage company mortgage http://online-mortgage.available-mortgage.com/ http://online-mortgage.available-mortgage.com/ guesses chided?constructive secured credit cards secured credit cards http://secured-credit-cards.available-mortgage.com/ http://secured-credit-cards.available-mortgage.com/ seltzer wordy insulates machinelike insurance quotes high risk personal loans insurance quotes high risk personal loans http://insurance-quotes.amazing-credit.com/ http://insurance-quotes.amazing-credit.com/ distracting,abscess philosophically cheeses erections car insurance quotes california debt consolidation car insurance quotes california debt consolidation http://car-insurance-quotes.grab-mortgage.com/ http://car-insurance-quotes.grab-mortgage.com/ surnames ten dramatically auto insurance quotes best mortgage refinancing auto insurance quotes best mortgage refinancing http://auto-insurance-quotes.available-mortgage.com/ http://auto-insurance-quotes.available-mortgage.com/ raves

0 credit cards 19.01.2006 klukkan 19:28#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com