Biðsalur dauðans
Jæja, þá eru 40 kvikindi dottin! Mér finnst ég hafa lifað löngu og nokkuð viðburðaríku lífi og lít svo á að allt vafstur mitt hér eftir sé bara bið eftir dauðanum. Kannski maður noti þó biðtímann til að læra meira, ferðast og skemmta sér með góðu fólki.
Minn innri maður verður að heiman í dag.
Fyrre, fed og færdig... til hamingju með áfangann! Þetta er rétt að byrja, sekmmtu þér vel í dag.
- - - 0 0 0 - - -
Til hamingju...
- - - 0 0 0 - - -
Til lukku!
Vonandi færðu sjokoleðe og kege í tilefni dagsins, já og bara hvenær sem þú þarft að lyfta þér á kreik í biðsal dauðans.
- - - 0 0 0 - - -
Takk fyrir, gott fólk :) Jú ætli maður geri ekki þessa biðstofu að einni allsherjar rússíbanaferð!
- - - 0 0 0 - - -
Hjartanlega til hamingju með afmælið félagi! Vertu verulega góður við þig í telefni dagsins.
- - - 0 0 0 - - -
Til hamingju með afmælið Biggi!
- - - 0 0 0 - - -
Ingibjörg hú? Takk einívei.
Og takk, Jón Kjartan. Eitthvað grunar mig að þú kannist við þennan atburð sem Orri bloggar svo skemmtilega um:
Þannig fór ég eitt sinn í Tónabúðina og fékk lánaðan forkunnafagran gítar til að fara með í plötuupptöku. En ég spilaði aldrei á gítarinn. Stillti honum bara upp fyrir framan Birgi sem trommaði af stakri snilld.
Svo þegar ég skilaði hljóðfærinu spurði verslunarstjórinn hvernig hann hefði verið: Jú, mjög fallegur – sagði ég og bætti við að ég vissi ekkert hvort þetta væri gott eða vont hljóðfæri. Verslunarstjórinn varð eitt spurningarmerki og hristi bara hausinn.
Það var heldur ekkert slor þegar við Orri unnum að plötu Þórunnar Antoníu. Þá var tekið upp í MÍR-salnum og ég hafði glæsilega ljósmyndasýningu um geimfarann Gagarín fyrir augum.
Og í sumar tókum við upp í Akureyrarkirkju. Þá stillti ég settinu upp andspænis altarinu og góndi á steinda gluggana við hljóðfærasláttinn.
- - - 0 0 0 - - -
Nú,unnendur þessarar síðu voru að hugsa um að slá saman í spegil, svo þú gætir mænt á sjálfan þig berjandi þessar tríólur. Þú ert bara orðinn svo feitur, að við fundum ekki neinn nógu stóran.
- - - 0 0 0 - - -
Hehe, nei ætli maður hefði nokkurn áhuga á að horfa upp sig hafa þessa tilburði í frammi. Maður er örugglega alveg ridikkjúlus meðan á ferlinu stendur, sbr.
þetta hér.
- - - 0 0 0 - - -
Til hamingju með öll árin....
Láttu þér líða vel.
- - - 0 0 0 - - -
Ja fyrst þú ert í biðsalnum, skrattastu þá til að spila eitthvað með KOMBóInu áður en röðin kemur að þér.:-)
- - - 0 0 0 - - -
Jú biggi, þetta var vissulega eitthvað sem að ég kannaðist við og mundi ágætlega eftir. Og ég er ekki ennþá búinn að fatta þetta. Minna vesen að nota bara ímyndunaraflið - loka augunum og sjá eitthvað fallegt :)
- - - 0 0 0 - - -
Ingibjörg Stefáns...
- - - 0 0 0 - - -
Sæl gamla. Þú fyrirgefur, en það eru bara svo margar Ingibjargirnar sem maður hefur umgengist :)
- - - 0 0 0 - - -
Til hamingju með afmælið Birgir og takk fyrir allt sem liðið er.
- - - 0 0 0 - - -
Til hamingju með afmælið.
- - - 0 0 0 - - -
Bestu þakkir kæru yfirnáttúrufræðingar.
- - - 0 0 0 - - -
Prjónaðu við
Gísli 02.10.2003 klukkan 08:50#