Stephan G. var ekki kristinn
án þess að vita það!
Það er ekki mannsins hærri náttúra, manndómurinn, drengskapurinn, hreinskilnin, skynsemin sem [kirkjan] treystir á [...] það eru lægri lögin í mannsandanum, eigingirnin, léttúðin, ragmennskan og hjátrúin [...] Hlýði maður ekki þessum boðskap dynja fordómarnir á þeim eða þá að hlutunum er snúið við og sagt "að maður sé kristinn án þess að vita það".
Stephan G. Stephansson
Ástæða þess að ég flagga hér þessari tilvitnun er sú að mér var að berast til eyrna að höfundur tveggja binda verks um skáldið hafi látið undan "málsmetandi aðila" og haldi því fram í seinna bindinu að skáldið hafi verið kristinn án þess að vita það.
Mér dettur enginn annar sökudólgur í hug en biskup. Hans pólitík gengur í það minnsta út á nákvæmlega þetta.
Og nú, þegar yfir hefur staðið ráðstefna þar sem menn hafa hver upp í annan þveran verið að lýsa því yfir að Stephan hefi verið kristinn án þess að vita það, og að siðferði og trú sé sama hugtakið, þá er víst að maður taki fram ritgerðaskruddur Stephans og skrifi harðorða grein á Vantrú.
Hún birtist von bráðar. Haldið ykkur fast!
Þú kannski lætur mig vita, þegar líður á lestur seinna bindisins, hvort eitthvað sé að marka þessa kjaftasögu. Eitt er þó víst, að með þessu þvaðri mínu hef ég fengið a.m.k. einn málsmetandi mann til að lesa verkið með athyglina á þessu sérstaka málefni.
Og þá er til einhvers unnið.
birgir.com 06.10.2003 klukkan 15:21#


Ég er ekki heldur búinn að rekast á fullyrðingu af þessu tagi í síðara bindi ævisögu Stephans G., en hef að vísu ekki ennþá lokið við hana. Enda bókin nýkomin út.
Þannig að ég vara við því að gera Viðar Hreinsson að blóraböggli í þessum efnum, a.m.k. ekki fyrr en sekt hans sannast!
Sverrir 06.10.2003 klukkan 15:13#