Mánudagur 06. október 2003

Safngripir

Þegar ég rölti um þjóðminjasafn Danaveldis á sunnudaginn gat ég ekki varist þeirri spurningu hvers vegna í ósköpunum trúarbrögð mannkynsins skuli enn vera boðuð og kennd.

Þau nutu sín nefnilega ágætlega þarna sem safngripir.

Sjá mátti sáran og blóðugan Jesú á krossinum í öllum stærðum og tilbrigðum, Shiva, Ganesh og systkini þeirra úr hindúasið veifuðu framan í mann undarlegri genetík sinni og líkin af bronsaldarfólkinu höfðu hjá sér ýmsa nytjahluti sem koma sér vel í framhaldslífinu.

Allt saman jafn úrelt og fávíslegt. Forheimskunin æpir á mann af veggjunum þarna.

Birgir Baldursson kl. 23:25 - efni: trúmál -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com