Miðvikudagur 08. október 2003

Hugsanaglæpir

Ég blandaði mér lauslega í vændisumræðuna hjá Matta á dögunum og tók þar að velta fyrir mér gildi og tilgangi lagasetninga. Ég velti vöngum yfir því hvort lög séu sett í þeim eina tilgangi að hindra ákveðna hegðun hjá borgurunum (siðgæði) eða hvort takmark þeirra gæti verið að móta hugsun þeirra (siðferði).

Mér þykir tilhugsunin um hið síðara frekar nöturleg og í stíl við fasismann í bók George Orwell 1984. Og fljótt á litið mætti sjá fyrir sér að hin svokölluðu "sænsku lög", sem gera karlinn að glæpamanni en fría vændiskonuna, séu sett með það í huga að breyta viðhorfum samfélagsins til þessara hluta.

En ég er ekki viss. Það má auðveldlega færa fyrir því rök að hér sé aðeins verið að beita fælingarmætti á karlana, því flestir þeirra komi til með að hugsa sig um tvisvar áður en þeir fara að stunda slíka glæpi. En þá er bara spurningin hvort rétt sé að stela glæpnum af vændiskonunni, því ef hún er allt í einu að þessu með fullkomlega löglegum hætti verður fælingarmátturinn að tælingarmætti - konan fremur lokkuð en hitt til að ýta karlpeninginum út á glæpabrautina.

Fyrir mér er málið einfalt: Banna bæði vændiskonunni og kúnnanum að stunda þetta, eða leyfa þeim það. Og í mínum huga er ekki spurning hvor leiðin er réttari, því fælingarmáttur lagasetningarinnar hrífur einungis á hina löghlýðnustu meðal vor en fullt frelsi í þessum efnum léttir bæði á lögreglu, dómskerfi, gleðikonu og kúnna.

Nei, það er pimpið sem á að vera ólöglegt. Mansal á ekki að uppræta með því að refsa kúnnum vændiskvenna, heldur þeim sem þrælahaldið stunda.

En þetta var útúrdúr. Stóra brýningin hér er sú að bæði þrýstihópar og þeir sem setja lög og framfylgja þeim átti sig á mikilvægi þess að lög séu sett sem skorður við hegðun okkar en ekki hugsun. Frjáls hugsun er einfaldlega of frjór akur til að verjandi sé að menga hann með slíku dédété-i.

En ég hef femínistana sem heimta þessi sænsku lög yfir okkur grunaða um að vilja breyta siðferði okkar og hugsun fremur en hegðun. Gæti verið að með þessum lögum séu þeir einfaldlega að reyna að gera sér auðveldara fyrir í því að fordæma karla fyrir að kaupa vændi, þegar hægt er að halda því hátterni á lofti sem beinhörðum glæp?

Það skyldi þó ekki vera?

Birgir Baldursson kl. 00:17 - efni: stjórnmál -



Viðbætur
Öll mál varðandi dóp, vændi o.s.fr. eru svo innilega óleysandi í frjálsu samfélagi. Kannski að Orwell skipulagið gæti leyst vandann. En ég hef bara ekki áhuga á slíku samfélagi. Þannig að við sitjum upp með að fólk er fífl.

Óskar 08.10.2003 klukkan 17:48#

- - - 0 0 0 - - -
Já, fólk er fífl og eyðileggur sig og aðra. Besta vörnin gegn því er auðvitað sú að breyta hugarfarinu með uppfræðslu og áróðri. Bara EKKI með lagasetningu.

birgir.com 08.10.2003 klukkan 20:54#

- - - 0 0 0 - - -
Það er út af fyrir sig mjög flippuð hugmynd að það geti verið ólöglegt að kaupa vöru eða þjónustu sem ekki er ólöglegt að selja. Ég held að feministar séu ekki bara að reyna að að breyta hugmyndum okkar í þá átt að það sé rangt að kaupa kynlífsþjóustu, heldur sé þetta líka liður í því að fórnarlambsvæða kvenfólk. Og mér finnst satt að segja komið nóg af því. Ég sé ekki að konum sé neinn greiði gerður með því að styrkja hugmyndina um þær sem viljalaus og varnarlaus fórnarlömb á öllum sviðum.

eva 09.10.2003 klukkan 17:29#

- - - 0 0 0 - - -
Nákvæmlega, Eva! Aumingjavæl er seint til þess fallið að verða málstað til framdráttar.

Sjáðu bara Samtökin 78. Árum saman mættu forvígismenn þeirra í andfúl sjónvarpsviðtöl og hörmuðu fordóma og misrétti. Það var ekki fyrr en Páll Óskar mætti á svæðið og lét eins og þetta hefði aldrei verið vandamál að viðhorfið breyttist.

Og það breyttist hratt.

Annað gott dæmi er söngkonan Madonna. Hún hefur alla tíð verið óhrædd við að vera kvenkyns og hegðar sér rétt eins og konum hafi aldrei verið haldið niðri.

Íslenskir femínistar mættu taka sér Madonnu og Pál Óskar til fyrirmyndar.

birgir.com 09.10.2003 klukkan 23:58#

- - - 0 0 0 - - -
affiliating Roswell unawares:hostage:abjures Watertown cortex!achieves cruiser! emerge mastercard debt consolidation loans emerge mastercard debt consolidation loans http://debt-consolidation-loans.our-money.com/ http://debt-consolidation-loans.our-money.com/ expanders augment!stages scouted: mortgage rates mortgage rates http://mortgage-rates.money-lovers.com/ http://mortgage-rates.money-lovers.com/ garage!deposes grills butterfat tissues california mortgage best home equity loans california mortgage best home equity loans http://california-mortgage.grab-mortgage.com/ http://california-mortgage.grab-mortgage.com/ lentils insure cash advances boat loans cash advances boat loans http://cash-advances.money-lovers.com/ http://cash-advances.money-lovers.com/ innumerability clams cash money payday advance oregon cash money payday advance oregon http://cash-money.our-money.com/ http://cash-money.our-money.com/ bittersweet bicycler current mortgage rates advance cash on line current mortgage rates advance cash on line http://current-mortgage-rates.available-mortgage.com/ http://current-mortgage-rates.available-mortgage.com/ acorn irrelevances Indus debt consolidation loan debt consolidation loan http://debt-consolidation-loan.our-money.com/ http://debt-consolidation-loan.our-money.com/ conquered:avoided!exhibitor tradeoffs prices mortgage refinancing mortgage refinancing http://mortgage-refinancing.grab-mortgage.com/ http://mortgage-refinancing.grab-mortgage.com/ deceit pocketed pends Usenix health insurance short term loan health insurance short term loan http://health-insurance.amazing-credit.com/ http://health-insurance.amazing-credit.com/ clamoring Rockford. car insurance quotes cash advance qualifications car insurance quotes cash advance qualifications http://car-insurance-quotes.grab-mortgage.com/ http://car-insurance-quotes.grab-mortgage.com/ recursive

refinance home mortgage home equity loan calculator 19.01.2006 klukkan 19:35#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com