Dvergakast
Ég heyrði einu sinni þá sögu (og veit ekkert hvað til er í henni) að sett hafi verið lög í Ástralíu til að koma í veg fyrir að hin vafasama íþróttagrein dvergakast væri stunduð. Þessi lög áttu sennilega að hefja dverginn aftur til virðingar í hugum fólks, en sannleikurinn er víst sá að þeir sem unnu við að láta henda sér urðu drullufúlir, enda orðnir atvinnulausir.
Hvað sem því líður þá dregur þetta upp þessa skemmtilegu mynd af dverginum sem kyssir konuna sína og segir "jæja, ég farinn í vinnuna," um leið og hann spennir á sig handfangið.
Birgir Baldursson kl. 20:59
-
efni: dýrðin
-


