101 atriði
Það eru allir að skrifa hundrað atriði núna. Hví þá ekki ég?
- Ég kann vel að meta myndir Milos Forman. Woody er oftast kúl. Myndin Smoke eftir Paul Auster er í uppáhaldi og alltaf er stutt í Terry Gilliam. Japanska myndin Onibaba á sérstakan heiðurssess, líka Forrest Gump, Konur á barmi taugaáfalls, Secrets and Lies, Kúbanska myndin Súkkulaði og jarðarber, Cohen-bræður, Chaplin, Casablanca...
- Ég er mikill aðdáandi Þórbergs, Laxness og Péturs Gunnarssonar. Þórarinn Eldjárn á líka upp á palborðið. Einararnir Már og Kára eru inni, en Guðbergur hefur fjarlægst mig. Af ljóðskáldum eru það Hannes Pétursson og Steinn Steinarr sem ná mér hvað best.
- Ren og Stimpy eiga í mér hverja taug og ég dáist af John Krisfalusi fyrir að hefja skrípó aftur til vegs og virðingar eftir áratuga niðulægingaskeið þar sem teiknimyndir með uppeldisgildi voru í öndvegi. Flest allt teknimyndaefni sem maður sér á Cartoon Network í dag á sér fyrirmynd í arfleið Spumco.
- Simpsons og Family Guy er líka horfandi á.
- Ég er Bítlafan. Og kann líka ágætlega við Stones.
- Ég elska fiðlusónötur og partítur Bach, sérstaklega í flutningi Elisabeth Wallfisch. Annar frábær fiðlari er Aaron Rosand.
- Ég hef sofið hjá rúmlega 20 konum um ævina.
- Ég hef líka kúrt hjá nokkrum konum, sumum oftar en einu sinni, án þess að kynmök kæmust nokkurntíma á dagskrá (þótt mig hafi mjög langað).
- Ég hef aldrei prófað að sofa hjá karlmanni. Veit ekki hvort ég myndi fíla það.
- Ég hef bara sofið hjá íslenskum stelpum. Kominn tími á að breyta því.
- Ég elska ketti.
- Mér leiðast yfirleitt hundar.
- Ég gafst upp í menntó á sínum tíma en fann mig aftur í námi fyrir örfáum árum.
- Ég er góður námsmaður. Er að bræða með mér að fara í nám í málvísindum eða trúarbragðafræðum, annað hvort á Íslandi, í Danmörku eða Englandi.
- Mig dreymir um að verða fræðimaður, rithöfundur, handritshöfundur, kvikmyndaleikstjóri, útvarpsmaður eða bara aftur atvinnutónlistarmaður.
- Ég þoli ekki fasisma, rasisma og önnur heimskuleg hugmyndakerfi. Kristindómurinn fer einatt í taugarnar á mér.
- Ég er vita trúlaus og hef öfluga siðferðiskennd. Lygar, óheiðarleiki og gróðahyggja fara í mig og ef ég stend fólk að lygum og undirferli á það varla upp á pallborðið hjá mér aftur.
- Ég tel að fyrirtæki eigi að hafa það eitt að markmiði að skapa vöru og þjónustu og veita fólki vel launaða vinnu. Krafan um arð hluthafa á ekki að koma niður á launum starfsmanna eða skila sér í hagræðingu sem bitnar á þjónustunni.
- Ég sá einu sinni um þátt á Útvarpi Rót. Sá hét Kartöflukjörbarinn eftir skyndibitastað úr bók Guðbergs Bergssonar um Ara Fróðason, en síðan steyptum við Sveinn Ólafsson og Dr. Gunni þáttum okkar saman undir eitt nafn og skiptum á milli okkar þriðujudagskvöldum. Nýja nafnið var Við við viðtækið.
- Ég er félagi í gönguklúbbnum Blómey. Þar innanborðs eru þeir vinir mínir sem ég hef umgengist hvað lengst.
- Ég á fáa vini úr bransanum, þótt starfað hafi þar lengi.
- Ég nenni ekki að sukka lengur. Drekk tæpast, en þegar það gerist fæ ég mér gjarna sígarettu.
- Reykti hass á árunum 1983-84 og aftur 1989-96. Veit núna að þetta efni gerir fólk viðskotaillt og vænisjúkt. Nenni ekki að halda heilabúinu í slíkri herkví og ráðlegg öllum að sleppa þessum viðbjóði.
- Hef aldrei prófað nein önnur fíkniefni.
- Ég get verið óþarflega hreinskilinn við fólk. Sumum hefur sárnað og þeir snúið við mér baki.
- Ég er veikur fyrir súkkulaði.
- Ég er með gargandi gráan fiðring og langar mest til að slá mér upp með 16 - 20 ára gömlum stelpum. Fyllist sorg í hvert sinn sem ég átta mig á að slíkar píur myndu aldrei líta við mér.
- Ég ætla mér ekki að verða mjög gamall. Á mælikvarða eilífðarinnar skiptir voða litlu máli hvort þessi tiltekni einstaklingur á plánetu þrjú í armi sex á vetrarbraut múmer 409.231.236.722.416.433.234 varð sjötugur eða níræður. Eftir hundrað ár man enginn eftir mér hvort eð er. Ég nenni bara ekki að dragnast með gamalmennið sjálfan mig eftir að heilsan bilar, heyrnin slappast og sjónin svíkur.
- Ég er fylgjandi fóstureyðingum og líknardrápi. Ég vil lágmarka eymdina í veröldinni.
- Ég óttast að í krafti frelsis komist á grjótharður einkarekinn fasismi, þegar stóru blokkirnar sölsa undir sig þær litlu og útrýma samkeppni.
- Ég óttast að kristnin með öllum sínum hindurvitnum og illu öndum eigi eftir að auka ítök sín í vestrænum heimi og kalla yfir okkur tæknivæddar miðaldir.
- Ég laðast að rómantískum hugmyndum um frelsi, jafnrétti og bræðralag.
- Ég á miklu léttara með að verða hræður yfir hlutskipti skáldsagnapersóna en lifandi fólks. Þetta á sérstaklega við um allar gömlu kellíngarnar í Laxness.
- Ég get grátið eymd og sorgir persóna í bíómyndum en nákvæmlega sömu aðstæður eigin lífi læt ég mér í léttu rúmi liggja. Ætli þetta sé ekki spurningin um matreiðslu.
- Ég þoli illa dagskrárgerð frjálsra útvarpsstöðva. Og sér í lagi fara heimskulegar leiknar auglýsingar í taugarnar á mér.
- Ég er hallur undir útiveru og fjallgöngur, en bý samt í vanfjallalandinu Danmörku og hangi endalaust inni.
- Ég hef setið til borðs með Tony Williams heitnum. Sá var flottasti trommari heimsins og breytti gangi djasssögunnar með Miles Davis kvintettinum. Það urðu engin orðaskipti, við átum morgunverðinn okkar þegjandi.
- Ég er mjög hallur undir modal tónlist. John Coltrane er í sérstöku uppáhaldi.
- Ég sé mikil verðmæti í gömlu fólki, sem miðlað getur af reynslu sinni og upplifunum. Langar að halda úti útvarpsþætti með viðtölum í léttum dúr við aldrað heiðursfólk, þar sem gamlar fylliríssögur af skáldum og sýslumönnum fá að fjúka.
- Ég á erfitt með að hlusta á óperusöng. Kórsöngur getur verið í lagi og ég er mjög hrifinn af Kór Menntaskólans við Hamrahlíð.
- Ég kemst alltaf í mikla stemningu yfir öllu sem lýtur að fornleifafræði. Um síðustu helgi stóð ég frá mér numinn yfir opnum gröfum bronsaldarfólks á danska þjóðminjasafninu. Hér í nágrenninu eru ótal grafarhaugar frá bronsöld og mig langar mikið til að grafa í þá og skoða.
- Mér finnst ég sjálfur vera fremur litlaus týpa, en ég get haft endalausan húmor fyrir öðru fólki. Stundum rofar þó til og ég leik á kómískum als oddi.
- Mér þykir miður að eiga engin börn, en hef efasemdir um að hamingjuna megi finna í kjarnafjölskyldu.
- Ég vil lögleiða dóp og vændi, af ástæðum sem nefndar eru lágmarksskaði (harm reduction).
- Ég þoli illa partíhávaða enda búið að skemma mig svo mjög í þeim efnum að ég breytist í taugahrúgu með sjálfseyðingahvöt ef ég þarf að búa við slíkt í marga klukkutíma samfleytt.
- Mér finnast lítl brjóst á konum sexí og græt í hjarta mínu í hvert sinn sem ég heyri af brjóstastækkunum.
- Ég hef mjög dýr áhugamál sem ég get ekki sinnt sökum fátæktar. Eitt þeirra er söfnun gamalla bóka, helst orðabóka. Það verður hátíð í bæ þegar ég næ mér í fyrstu útgáfu orðabókar Dr. Samuel Johnsson. Hún fer í glerkassa. Annað svipað áhugamál er fiðlusöfnun. Ég skoða þær á eBay en hef ekki efni á þeim.
- Stelpur sem fá sér dreddara verða instantlí sætar í mínum augum.
- Ég á ride-simbala úr smiðju Steve Hubback. Þetta er listmunur til jafns við notagildið. Og sándið maður lifandi!
- Mér finnst kúbismi og abstrakt málverk eftirsóknarverðasta myndlistin.
- Ég á einn myndramma úr Ren og Stimpy teiknimynd. Dreymir um að eignast einhverntíma ramma úr Tex Avery klassík.
- Ég eignaðist ekki PC tölvu fyrr en 1994. Fram til þess tíma og frá árinu 1988 var ég Atari-maður.
- Ég átta mig vel á skemmtanagildi kynlífs og því hvernig það er samofið því hver við erum, heilastórir prímatar með ríkar viðveruskyldur við afkomendur okkar sem eru ósjálfbjarga mörg fyrstu æviárin. Skírlífi þykir mér vera perversjón og munkar og nunnur því kynferðislega afbrigðilegt og brenglað fólk. Samt hef ég ekki sofið hjá lengi. Það er ekki meðvituð ákvörðun, heldur hefur bara æxlast svo.
- Einhverntíma kom ég mér upp þekkingu og færni í því að sleikja píku. Kynlífið hjá mér breyttist talsvert í kjölfarið, varð miklu meira spennó.
- Ég var fóbískur fyrir enskri tungu á menntaskólaárum mínum og kveið fyrir hverjum enskutíma. Þetta fylgdi mér langt inní fullorðinsárin og ég átti oft erfitt með að halda uppi samræðum á þessari tungu. Leið jafnvel eins og það væri verið að spila með mig og það talaði enginn þetta mál í raun og veru. Eftir að ég eignaðist Ataritölvuna og fór að leika mér í tölvuleikjum sem byggðust alfarið upp á rituðu máli fór sjálfstraustið að aukast og nú á ég ekki í neinum vandræðum með þetta mál.
- Í dag er ég hálffóbískur fyrir danskri tungu og finnst hálfpartinn að verið sé að spila með mig, það tali enginn þetta mál í raun og veru.
- Ég var orðinn viss um það áður en ég náði grunnskólaaldri að ég ætlaði að verða trommari.
- Ég átti mjög góða æsku.
- Ég lærði á fiðlu en hætti því 10 ára gamall því þá gat ég gengið í Skólahljómsveit Kópavogs og lært á trommur. Í dag væri ég meira en til í að vera góður á fiðlu, en ég get enn spilað svolítið. Keypti mér m.a.s. gamla flotta fiðludruslu sem ég tek fram endrum og sinnum. Hún hljómar finnst mér eins og milljón dollars.
- Eddi Lár er uppáhaldsgítarleikarinn minn í öllum heiminum.
- Mér leiðist forstöðlun í listum. Listin á að vera spennandi og koma sífellt í opna skjöldu. Þannig reyni ég að spila á hljóðfærið mitt, finna nýja fleti og nálgun út í það óendanlega.
- Dr. Gunni kom mér á S.H. Draumsárunum upp á að fíla myndir John Waters og sjá fegurðina í ljótleikanum. Ég væri sennilega mun þröngsýnni og einsleitari týpa ef ekki væri fyrir þetta gustukaverk hans. Takk Gunni.
- Ég hef ógurlega gaman að rökræðum um trú og trúarbrögð. Helst þurfa viðmælendurnir að vera með fræðilega menntun á þessum sviðum, því þá verður kikkið enn stærra þegar maður nær að reka eitthvað ofan í þá. Já, ég er veiðimaður á lendum fáránleikans.
- Ég slæ nafnið mitt reglulega inn í Google til að sjá hvað ritað hefur verið um mig á vefnum. Slíkar leitir hafa skilað fróðlegum niðurstöðum.
- Mig grunar að ritgerð Sören Kierkegaard, Uggur og ótti sé skrifuð sem háðsádeila.
- Ég á engar eignir lengur og varla bót fyrir rassinn á mér.
- Ég held ég yrði mjög góður eiginmaður og frábær faðir.
- Ég er í þann veginn að falla á sex ára reykingabindindi. Fer þó rólega af stað og reyki síður en svo á hverjum degi.
- Ég er nánast aldrei þunglyndur en mjög sjaldan kátur heldur. Keyri á einhverri svona vægri angurværð. Einu skiptin sem hellist yfir mig verulegt þunglyndi er þegar ég reyni að fara eftir sjálfshjálparbók sem ég á og kennir manni að þagga niður í úrtöluröddinni í heilanum. Þessi hugarvírus minn lætur sko ekkert segja sér að þegja, heldur pumpar mig fullan af vonleysi og sjálfseyðingarhvöt í hvert skipti sem ég reyni að kála honum.
- Ég er ekki trommunörd, heldur lít ég á mig sem tónlistarmann fyrst og fremst. Það vill bara svo til að ég leik á trommur, ég nenni ekki að liggja yfir nýjustu græjum og gizmóum. Mér leiðast hljóðfæraidíótar.
- Stundum hellist yfir mig nostalgía sem nær aftur í tímabilið fyrir fæðingu mína. Óska þess að allir væru í hvítum skyrtum og jakkafötum með hatta og konurnar í kjólum. Stíll í klæðaburði, en ekki þessi ömurlega jogginggalla sportjakka stílleysa sem ríkir. Kannski þetta ástand sé aðeins að lagast.
- Mér finnst gaman að spá í rökvillur.
- Ég er veikur fyrir Douglas DC-3 og slíkum Þórbergum í flugvélaflota heimsins. Mér þykir gaman að fljúga í flughermum.
- Ég á ekki DVD spilara og hef aldrei átt.
- Mér finnst esperanto spennandi, en nenni ekki að læra það nema í skorpum.
- Ég féll alveg fyrir námsefninu í kúrsinum íslenskt nútímamál í HÍ. Hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, orðmyndunarfræði og setningafræði eru greinar sem ég gæti hugsað mér að mastera.
- Ég er góður í að lesa upp ljóð. Þetta vissi ég ekki fyrr en mér var bent á það í kúrsinum meðferð talaðs máls.
- Mér þykir oftast fremur leiðinlegt að skemmta mér. Ég sit yfirleitt heima um helgar og geng því ekki út.
- Ég á erfitt með að semja lög einn með sjálfum mér en á þess auðveldara með að henda á lofti hugmyndir annarra, prjóna við þær og útfæra. Það býr fremur í mér útsetjari en tónskáld. Kannski það eigi eftir að breytast.
- Ég hef engan áhuga á fótbolta.
- Mér þykir ógurlega gott að liggja í heitu baði, en hef ekki búið við slíkar aðstæður í á annan áratug. Fæ stöku sinnum að fara í bað hjá vinum og kunningjum sem eiga baðkar.
- Ég sakna mikið sundlauganna á Íslandi og finnst þessi sem ég fer í hér í Danmörku vera hálfgert frat. Allir pottarnir eru of kaldir og það eru gufan og sánan líka. Aðeins hér hefur mér orðið kalt á fótunum inni í gufubaðsklefa.
- Mér finnst gaman að hjóla en geri of lítið af þvi.
- Ég er að leggja drög að kvikmyndahandriti ásamt frænku minni.
- Ég hef lifað ótrúleg langvarandi blankheit svo jaðrar við sára fátækt.
- Ég hef líka haft stórgóð laun, en það stóð frekar stutt.
- Ég hef aldrei starfað með Sverri Stormsker eða Hallbirni Hjartarsyni, en með flestum öðrum tónlistarmönnum af minni kynslóð og eldri.
- Ég óttast ekki dauðann. Frekar að ég óttist lífið.
- Ég hef alveg losnað við þá geitungahræðslu sem íslenskir fjölmiðlar náðu að smita mig af á sínum tíma. Þetta eru bara flugur.
- Mér finnst í lagi að drepa flugur.
- Ég drep yfirleitt ekki köngulær, því þær halda flugum í skefjum. Það eru allavega tvær köngulær á rölti um herbergið mitt. Ég var að horfa á aðra þeirra rétt áðan.
- Ég á ekki einu sinni rúm, heldur sef á dýnu á gólfinu.
- Mér fannst dásamlega skemmtilegt að kenna á trommur í Tónskóla Eddu Borg, en því miður voru launin þar djók. Ég á eftir að kenna aftur.
- Mig dreymir stundum flotta drauma þar sem fólk segir æðislega hluti.
- Ég gæti hugsað mér að vera on-the-road að spila nonstop árið um kring. Ég þarf ekkert frekar að eiga heima neinsstaðar. Og þó, ég þarf að eiga samastað fyrir allar dásamlegu bækurnar mínar og hitt dótið mitt.
- Ég er stundvís, en ef þeir sem ég starfa með eru það ekki læri ég að seinka mér til jafns við þá.
- Ég er alltaf í bestu stuði um og uppúr miðnætti og finnst erfitt að drullast a lappir á morgnana.
- Ég drekk frekar mikið kaffi og það verður að vera sterkt og kremað.
- Ég er latur við að kynna mér ný talent í tónlist.
- Ég væri til í að flytja til Englands eða í annað enskumælandi land.
- Ég var rétt í þessu að kála moskítóflugu sem sat á veggnum hjá mér og beið þess að ég sofnaði. Ég er allur deformaður eftir árásir hennar síðustu nætur. Djöfull sem þessar druslur geta slasað mann.
Birgir Baldursson kl. 13:04
-
efni: almennur heilaspuni
-
Samkvæmt þessu eigum við 49 atriði af 100 sameiginleg. Þú gleymir reyndar að nefna að þú ert líklega þrætuspengill dauðans.
eva 15.10.2003 klukkan 00:21#
- - - 0 0 0 - - -
Hmm, ertu farinn að fleygja í okkur gömlum, nöguðum beinum?
Gísli 03.02.2004 klukkan 19:47#
- - - 0 0 0 - - -


