Skeinir dverg
Orri er að velta fyrir sér uppnefnum í dag og um leið því hvort hann gangi undir einhverju slíku sjálfur.
ég hef stundum velt þessu fyrir mér með sjálfan mig. Veit að innan Sálarklansins er ég uppnefndur Kölski vegna vankristni minnar en annað hefur ekki borist mér til eyrna.
Tónlistarbransinn er fullur af þessu og Skaginn líka. Því sætir það furðu að maður hefur ekki heyrt Orra kallaðan neitt annað en Orra Harðar. Kannski menn feli uppnefnið fyrir mér líka, því við erum jú svo miklir vinir.
Uppnefnin í bransanum geta oft verið mjög hugvitsamleg og fyndin. Best samt að vera ekkert að flagga þeim hér, tja nema kannski þessu í fyrirsögninni. Ágætur plötuúgefandi er í minni kreðsu stundum kallaður þetta. Uppnefnið dregur upp mjög kómíska mynd af honum við störf einhversstaðar í heilbrigðisgeiranum. Þetta er ekkert illa meint, heldur bara hljóðlíking við nafn hans.


