Öfug anorexía
Dreymdi í nótt að ég væri orðinn 120 kíló. Ég stóð í öngum mínum á voginni og vældi eitthvað á þá leið að ég bara skildi þetta ekki, ég sem upplifði sjálfan mig svo grannan.
Einhver viðstaddur, læknir eða eitthvað, sagði að ég hlyti að hafa öfuga anorexíu. Ætli það fyrirbæri sé til og geti útskýrt hvers vegna margt fólk leyfir sér að tútna út?
Birgir Baldursson kl. 14:06
-
efni: almennur heilaspuni
-
Það er áreiðanlega oft óheppileg samvirkni græðgi og óhamingju sem veldur því að fólk étur á sig offitu. Öfug anorexía er áreiðanlega til, hvaða fræðiheiti sem hún nú hefur. Gaui litli lýsti því einhverntíma hvernig hann áttaði sig á ástandi sínu þegar hann sá sjálfan sig óvænt speglast í búðarglugga í Kringlunni. Honum hafði alls ekki fundist hann vera neitt afmyndaður fyrr en þá.
eva 25.10.2003 klukkan 00:05#
- - - 0 0 0 - - -


