Föstudagur 24. október 2003

Uppreisn æru

Blaðamaðurinn og ofurpönkarinn Þórunn Hrefna fór að háskæla undir frumsýningu myndarinnar um Helga Hós í gær. Ég iða í skinninu eftir að fá að sjá þessa mynd.

Þegar ég svo las það á Badabing að Helgi hefði fengið "standing ovation" eftir sýninguna lá við að ég færi að skæla líka. Það er eitthvað svo fagurt við það að gamall beygður maður, sem búinn er að stunda þrotlausa en vonlausa baráttu fyrir réttlætinu skuli svo skyndilega fá uppreisn æru eftir að hafa árum saman verið afgreiddur sem lúni.

Ég væri alveg vís til þess að taka upp baráttu hans að honum látnum. Og ég geri það að tillögu minni að komið verði upp sérstökum grafagarði fyrir trúlausa og hann kallaður "Friðargarður Helga Hós". Helgi fái þar veglegt leiði, ef útfararfyrirmæli hans leyfa.

Minni á viðtal Tótu pönk við hetjuna á Vantrúnni.

Birgir Baldursson kl. 15:30 - efni: dýrðin -



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com