Hálfopið bréf til Karls Sigurbjörnssonar biskups
Kæri Karl!
Eins og þú veist standa nú yfir sýningar á heimildamyndinni Mótmælandi Íslands, en hún fjallar um áratugalanga baráttu Helga Hóseassonar við kirkjuna um að fá skírnar- og fermingarsáttmála sína ógilda gerða. Á blómaskeiði baráttunnar, þegar Helgi var sem aktívastur, beindust mótmæli hans helst að föður þínum, sem m.a.s. fékk á sig bæði skyr og kæru eins og þú manst.
Mér segir svo hugur að ný kynslóð Íslendinga, sem nú fær að skoða baráttu Helga í sögulegu samhengi, muni í stórum stíl taka afstöðu með honum í þessu máli - hann virðist þegar vera orðinn hetja í augum ótalmargra. Og í ljósi þess sting ég hér með upp á að kirkjan láti nú tilleiðast, meðan Helgi er enn ofar foldu, og veiti honum þessa langþráðu lausn mála sinna í formi plaggs sem undirritað er af þér og pápa þínum.
Og svona, væl júr att it, þá megið þið alveg útbúa annað eins handa mér. Skynsamlegast væri jafnvel að láta prenta svona fimm þúsund eintök af óútfylltu plagginu, því víst er að margir vilji fylgja á eftir Helga og skola af sér þann ófögnuð sem þessar særingar óneitanlega eru í hugum þeirra.
Fallegt væri auðvitað ef þið bönkuðuð upp á hjá Helga í eigin persónu og kölluðuð til blaðaljósmyndara til að festa hið sögulega móment á mynd. Enn betra væri þó ef þetta yrði gert við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu og allir fengju veitingar (maltextrakt og kökur) í boði kirkjunnar. Sannaðu til, stofnunin sem þú veitir forstöðu fengi sennilega bara allnokkra virðingu fyrir tiltækið, en álit almennings á henni þverr nú með degi hverjum. Þetta væri einfaldlega það langsvalasta sem kirkjan gæti gert í stöðunni.
Hugsaðu málið Karl minn. Kannski væri ekki vitlaust að þið feðgarnir færuð nú saman að sjá myndina, svona til að koma ykkur í stuð fyrir þennan stóratburð.
Með góðri kveðju,
Birgir Baldursson


