Fimmtudagur 30. október 2003

Reykingar

Ég hef náð þeim skemmtilegum hæðum í reykingafikti mínu að vera kominn í bullandi fráhvörf hafi ég ekki kveikt mér í fyrir klukkan fjögur á daginn.

Gaman að þessu. Reyndar var ég ekki viss um það í gær hvort tilfinningin hið innra væri fráhvörf eða tilhlökkun eftir því að spila útgáfukonsertinn með Heiðu og heiðingjunum sem stefnt er á að verði í desember. Datt þar af leiðandi í hug hvort ekki væri þarna komin ný leið handa reykingafólki til að sigrast á fíkninni, gera sér einfaldlega að leik að mistúlka fráhvörfin sem tilhlökkun eða einhverja aðra adrenalíntengda tilfinningu.

Ég ætla hætta að reykja í dag og upplifa þessa geðveiku tilhlökkun næstu vikurnar.

Birgir Baldursson kl. 15:42 - efni: almennur heilaspuni -



Viðbætur
Voó, ég ákvað einmitt að hætta að reykja í nótt.
Það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég vaknaði var "nú er þetta búið bara. Aldrei meira sígó. Sniff."
Og mér varð hugsað til þín - þú sagðir fyrir ca. hálfu ári að gott væri að reykja yfir sig í ölæði og fá þannig ógeð, slíkt virkaði vel þegar maður er við það að falla.
En ég byrjaði bara að reykja full time.
Svo gerðir þú 101 atriða listann og sagðist vera að falla á 6 ára bindindi.
Og ég hugsað með mér, þetta er vonlaust.
Ég er alveg ofsalega sorgmædd og full af söknuði.
En ég hef ákveðið að syngja á hverjum degi og finna muninn á röddinni, og ég er byrjuð í kór og stefni að háa e!
Svo er ég með smá tölfræðileik af því ég er með þráhyggju fyrir tölum - ef ég verð reyklaus í nóv og des verð ég búin að reykja hálft árið 2003/reyklaus hálft árið 2003.
Dunda mér við að deila þessu öllu í 3 og vona að ég fái mér ekki sígó.
En ef ég verð enn meira geðveik á reykleysinu ætla ég samt að byrja aftur að reykja.
Úff, djöfuls líf.

Sísí 30.10.2003 klukkan 16:27#

- - - 0 0 0 - - -
Áfram Sísí! Þú getur þetta alveg. Prófaðu bara að finna eitthvað til að hlakka til (t.d. útgáfutónleika Heiðu og heiðingjana) og í hvert sinn sem kveisan kemur yfir skaltu byrja að hugsa um tilhlökkunarefnið og viljandi mistúlka löngunina sem tilhlökkun. Þetta eru mjög svipaðar kenndir nefnilega.

birgir.com 31.10.2003 klukkan 00:09#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com