Rónamálið danska
Ég hætti aldrei að furða mig á þessu tungumáli sem fólkið í kringum mig talar hérna. Ekki nóg með að hljóðkerfið sé vangefið, heldur fylgir í kaupbæti sú undarlega árátta að rífa röddina reglulega með kokönghljóði eins og venja er hjá örgustu rónum.
Þetta er sér í lagi hjákátlegt þegar hálfstálpuð unglingsgerpi bregða fyrir sig þessum varíant.
Birgir Baldursson kl. 16:34
-
efni: tungan
-
Ég hafði ægilega gaman af því þegar hún Mary sem er að giftast prinsinum talaði dönsku og ég skyldi Mary betur en prinsinn.
Óli Gneisti 04.11.2003 klukkan 20:39#
- - - 0 0 0 - - -
Íslenskan hljómar ekki skár í eyrum útlendinga, jafnvel þeirra sem tala náskyld tungumál.
- - - 0 0 0 - - -
Er uppiskroppa með sérprent þessarar greinar sem ég talaði um við þig - þú finnur líka langtum bitastæðari guðfræði á bókasöfnum í henni Danmörku (og víðar!).
Góðar stundir
Skúli 04.11.2003 klukkan 22:25#

