Ástu R. sé lof og prís!
Við Vantrúarmenn sendum þingmönnum opið bréf í dag, auk þess sem það birtist bæði í Fréttablaðinu og á Vantrú sjálfri.
Það var Óli Gneisti sem á heiðurinn af bréfinu, mitt hlutverk var það eitt að krukka í málfar og stíl, auk þess sem ég læddi inn nokkrum málsgreinum frá Frelsaranum okkar á Vantrú.
En út fór það í nótt og þingsetarnir hafa verið að opna það einn af öðrum allt frá því snemma í nótt. Tveir hafa þó dílítað skeytinu sínu án þess að lesa það. Aðeins einn þingmaður hefur beinlínis sent okkur svar um hæl - Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Þessi þingmaður hefur alla tíð verið hallur undir trúfrelsið og hefur sýnt aðskilnaði kirkju og ríkis hvað mestan áhuga. Það kemur því ekki á óvart að einmitt hún skuli svara með þeim orðum að hún ætli að athuga þetta.
Og það gerir hún, ef ég þekki hana rétt. Það er gott að eiga svona fínan málsvara trúfrels, sem Ásta er, inni á Alþingi.


