Föstudagur 14. nóvember 2003

Andskotans sagnasnilld!

Hann, þessi gamli þrifni maður, sem átti nokkrar bækur í klút og sjö börn í jörðu og sjó, og hafði ætlað að verða skáld, mikið dó hann umkomulaus.

Hvernig ferðu að þessu Laxness! Hvar lærðirðu þessa galdra, hvar lærðirðu að rykkja svona fast í hjartað á manni, þarna helvítið þitt!

Birgir Baldursson kl. 00:41 - efni: dýrðin -



Viðbætur
Jamm, þetta er hvínandi snilld. Og svona læra menn ekki að gera, það er nú málið. En sumir halda að það sé hægt að læra einhverja listsköpun að viti; sjáðu allt liðið í bókmenntafræðinni, nú eða FÍH (Félagi Íslenskra Hljóðfæraeiganda). Menn læra að analysera og apa upp einhverja tækni, svo sitja þeir bara uppi með einhverja gráðu og bora í nefið.

Ætli því sé haldið á lofti í bókmenntafræðinni að Laxness og Þórbergur voru lítt skólagengnir?

Eða þá að Björk, Bubbi, Megas, Maggi Eiríks, KK, Gunni Hjálmars og allir hinir snillarnir voru aldrei í FÍH!!!

Jamm, fólk fer í skóla til að læra endalaus likk og klisjur! Skapar ekkert sjálft.

Orri 14.11.2003 klukkan 09:18#

- - - 0 0 0 - - -
Orri, minn kæri vin - held að þú sért þarna að fara villur vegar. Það að læra ákveðna tækni - hvort það er í hljóðfæraleik, hvernig maður beitir pensli...eða málfræði, hvernig getur það verið slæmt? Það er bara verið að læra að nota tæki til að auðvelda manni að koma því sem innra býr út - en ef það býr ekkert innan í er maður náttúrulega engu nær. Hins vegar sértu fullur af einhverju sem þú þarft að koma frá þér, þá geturðu það á náttúrutalenti. Tekur bara lengri tíma - þú þarft að læra af eigin mistökum í stað þess að vera búinn að kynna þér hvað hefur ekki verið að ganga. Veit ekki alveg hvort mér finnst verra; snobb fyrir menntun eða þetta - að finnast menntun vera til baga!

Jón Kjartan 14.11.2003 klukkan 21:41#

- - - 0 0 0 - - -
Jón minn kæri. Ég sagði aldrei að menntun væri til baga heldur einfaldlega að skólaganga gefur manni ekki kreatívitet.

Og við skulum hafa það á hreinu að menntun og skólaganga er ekki það sama.

Þannig geta menn verið hámenntaðir þótt ekki séu þeir langskólagengnir - og svo öfugt.

En vissulega getur maður lært margvíslega tækni í skóla - og það var líka það sem ég sagði.

Orri 15.11.2003 klukkan 13:30#

- - - 0 0 0 - - -
Laxness hefur örugglega átt sína lærimeistara og Þórbergur líka. Þórbergur var t.d. afar vel að sér í stílfræði og gamalli retórík. Það sést best á því hvernig hann setur fram texta.

Allt hefur þetta kostað þrotlausa vinnu. Einhver sagði talentið gilda 10% í þessum efnum, afgangurinn væri vinna.

Maður lærir ekki talentið í skólum, en það er rétt að fyrir þá sem það hafa getur markviss menntun fleytt mönnum hratt fram á við.

Spurningin er í raun ekki hvort menn geti lært eitthvað í skólum heldur hvað menn læra þar. Og gæti ekki verið að kennsla í Tónlistarskóla FÍH snúist fullmikið um að koma sér upp klisjubönkum og "likkum"? Skólanám í listum ætti að beinast meira að því að benda á og vara við slíku, heldur en að fylla hausana á fólki af þessu.

Þeir sem engu hafa að spreða nema klisjum verða alltaf annars flokks.

birgir.com 15.11.2003 klukkan 16:14#

- - - 0 0 0 - - -
Getur ekki verið að menn bara gleymi sér svolítið mikið í tónlistarskólunum (allavega FÍH)- séu farnir að fókuser of mikið á hljóðfæraleikinn sem slíkann, missa sjónar á músikinni? Sé farið að snúast um fingraleikfimi í stað tifinninga?

Jón Kjartan 16.11.2003 klukkan 15:57#

- - - 0 0 0 - - -
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með FÍH. Fannst vera of mikill færibandafílingur þarna og eins og pælingin væri að það væri betra að fá djobb við að leika í auglýsingu eða leikhúsi en að losa um eigin sköpunarhæfni og hleypa tilfinningum sínum sem hamslausu stóði um víðlendi hins mannlega litrófs.

Fellibylur 07.12.2003 klukkan 18:26#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com