Fjölleikahús Fellibyls
Sá hljómsveitina Innvortis á Vídalín í gær. Skítt með bandið, það var alveg fínt, en Flosi var eins og eins manns sirkus þarna á bassann. Það voru alveg loftfimleikar, fílar, dvergar og trúðar.
Þessi upplifun á eftir að halda mér hamingjusömum næstu daga.
Birgir Baldursson kl. 23:55
-
efni: tónlist
-
Vona að þetta sé jákvætt meint hjá þér. Var búinn að fá mér einum of mikið neðan í því...hm!? Hefði viljað heilsa yður með handabandi en vonandi gefst tími til þess seinna!
fellibylur 06.12.2003 klukkan 01:00#
- - - 0 0 0 - - -
Jákvætt? Heldur betur, ég var í skýjunum! Var búinn að gleyma hverslags músíkfenómen þú ert.
birgir.com 09.12.2003 klukkan 16:38#
- - - 0 0 0 - - -
Það er ekki sama hvaðan hólið kemur og þetta fær mig virkilega til að brosa út að eyrum.
fellibylur 14.12.2003 klukkan 01:27#
- - - 0 0 0 - - -


