Laugardagur 07. febrúar 2004

Sjálfsögrun

Í grein minni Fegurð, sem birtist á Vantrú í dag, tengi ég í frábæra grein Paul Graham um tískusveiflur skoðanamyndunar. Þar kemur hann inn á orðanotkun á borð við hatursáróður.

Þetta orð hefur verið mikið notað síðustu misseri og sumir farið mikinn í vilja sínum til að banna alla slíka tjáningu á opinberum vettvangi. Þjóðernissinnar hafa sér í lagi orðið fyrir barðinu á þessu hugtaki, enda skiljanlegt í ljós þess sem þeir boða.

En hvað nákvæmlega er hatursáróður? Sjálft orðið er, eins og Graham bendir á, eins og beint upp úr skáldsögu George Orwell, 1984. Getur verið að þessi merkimiði sé orðinn til í þeim tilgangi að koma í veg fyrir rökræður um málefni sem ákveðnir hópar í samfélaginu eru viðkvæmir fyrir og óttast jafnvel að geti innihaldið bitran sannleik? Eru menn hræddir við að hugsa ákveðnar hugsanir til enda?

Ég er að velta fyrir mér að taka þennan ágæta mann á orðinu og ögra sjálfum mér aðeins. Eins og berlega kemur í ljós hér á vefsetri mínu er ég harður andstæðingur nasisma, enda tel ég kynþátta- og þjóðernishyggju ekki eiga við nein rök að styðjast. Ég tel t.d. engan skaða af því að fábreytt genaflóra Íslendinga, með hið almenna músarlita hár og föla húð, blandist litfegurri og svipsterkari stofnum, auk þess sem framandi menningarstraumar munu efla og auka lífsgæði okkar og víðsýni.

En í viðbótum við þetta blogg hér tiltek ég frétt um að sjávarlíffræðingar telji íslenska laxastofninn í hættu vegna blöndunar við framandi stofna. þeir segja að íslenski stofninn muni við þetta tapa hæfni sinni til að komast af við þær aðstæður sem hér ríkja.

Getur þetta átt við um okkar tegund líka?

Þetta er sjálfsagt einn af þessum hlutum sem Graham talar um að ekki megi segja upphátt, en ég ætla samt að orða það: Hlynur og félgar í FITH. Það er alveg möguleiki á því að þið hafið eitthvað til ykkar máls þegar þið talið um að halda norrænu mannkyni hreinu. Verst er að þið hafið barasta ekki komið með nein haldbær rök fyrir máli ykkur. Tínið þau fyrst til, sýnið fram á að genablöndunin valdi dalandi hæfni þeirra sem þetta land byggja og þá getum við spjallað.

Nei, við eigum ekki að banna þjóðernissinnum að taka til máls og stimpla málfltuning þeirra fyrirfram sem hatursáróður. Frekar skulum við hlusta vel á allt sem sagt er, meta rökin og sjá hvort sannleikskorn sé þarna að finna.

Sannleikurinn er einfaldlega hugsanatískunni æðri.

Birgir Baldursson kl. 05:17 - efni: nasismi - vísanir (0)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com