Miðvikudagur 11. febrúar 2004

Henry Kloss

Félagi Orri Harðar ræðir um fyrstu sólóplötu sína í þættinum Geymt en ekki gleymt klukkan tíu í kvöld. Af því tilefni keypti ég mér Tivoli Audio útvarp.

Þegar ég starfaði hjá fyrirtæki bróður míns í Danmörku í fyrra höfðum við Rás 1 stöðugt í gangi við vinnuna, enda engar takmarkanir á dánlódi í Tele Danmark-tengingunni sem firmað er með. Það skýtur því skökku við að þegar maður er kominn í tæri við uppsprettuna skuli maður ekki hafa drukkið vatnið hingað til.

En Henry Kloss er semsagt búinn að redda því.

Birgir Baldursson kl. 17:31 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Er þetta Audio One? Hvað gafstu fyrir gripinn?

Gísli 11.02.2004 klukkan 18:35#

- - - 0 0 0 - - -
Jamm, þetta er hið klassíska fyrsta módel karlsins. 16.500 kall staðgreitt. Betra að gera þetta almennilega en sitja uppi með eitthvað Kóreanskt plastík sem sándar illa og bilar strax.

Birgir Baldursson 12.02.2004 klukkan 13:59#

- - - 0 0 0 - - -
Sýnist það svipað verð og hér.

Annars ættirðu kannski að fara að slaka á í þessu trúboði gegn trúboði ef svo má að orði komast. Líftæknin og upplýsingatæknin munu móta líf okkar næstu áratugina og kirkjan hefur hingað til ekki sýnt þeim sviðum neinn áhuga.
Kristindómurinn er auðvitað bara svipur hjá sjón miðað við áður. Hann er ekki fulltrúi neinnar valdablokkar á Íslandi, stjórnmálamenn líta að vísu annað slagið við í guðþjónustu til að heilsa uppá atkvæði, en aðskilnaður ríkis og kirkju gæti aftur á móti hleypt lífi í aðra söfnuði. Þá væri ekki ólíklegt að Fíladelfía, Krossinn og óháði Söfnuðurinn mynduðu einhvers konar þrýstihóp eða regnhlíf til að fronta hagsmuni sína.

Nú, stærstur hluti þeirra sem á pappírnum játa kristna trú á Skerinu skírskota gjarnan til barnatrúar sinnar þegar þetta mál ber á góma. Þeir segjast trúa á "eitthvað", en samt myndu þeir ekki kvarta við skólastjórann ef skólinn felldi niður kennslu í kristinfræðum. Kristindómnum er heldur ekki beitt þegar reynt er að gera okkur íslendinga meðvitaða um samhengið milli fólks og þjóðar. Týpur eins og Birgir, drGunni, Jói á Hjólinu og Stebbi geit breyta því ekki að við íslendingar erum það sem kallað er Einnar-menningar-þjóðfélag.

Aðalástæðan fyrir því að íslenska kirkjan er ekki lögð niður er líklega safnaðarstarfið, sem spannar allt frá æskulýðsstarfi til umönnunar aldraðar. Kirkjan var tiltölulega fljótt úti í þessum efnum, og hefur náð til ansi marga gegnum það. Kirkjan er líka alltaf opinn fyrir einstaklinga sem á einhvern hátt hafa orðið undir í lífsbaráttunni í samfélagi þar sem samkeppninn verður bara harðari og harðari.

Nú, sum trúfélög eru líka hreinn og beinn bissniss. Alveg eins og þegar Herbalife tröllreið öllu, taka margir fram budduna þegar þeir heyra orðið trú. Fíladelfíusöfnuðurinn og Krossinn treysta á sína félagsmenn og konur, og allir sem vilja þrauka á þessum markaði verða að læra stafróf Kapítalismans.

Nú, þar sem það er ríkt í okkur íslendingum að taka aldrei neitt trúanlegt fyrr en við höfum sannreynt það, hlýtur maður að undrast yfir því hvað það er í kristindómnum eða trú almennt sem laðar að fólk. Trú er í eðli sínu ekki sérstaklega lýðræðisleg. Þetta snýst um að fylgja vilja guðs og vera verkfæri eða hluti af stærra samhengi. Lúther hressti aðeins uppá þetta með því að leggja áherslu á hlutverk einstaklingsins og gera hann ábyrgan fyrir trú sinni gagnvart guði, í þeim skilningi að trú og athöfn væru einn og sami hluturinn. Og það er kannski það mikilvægasta sem kristindómurinn hefur gefið okkur, þessi hugmynd um að hver manneskja eigi rétt á að lifa út möguleika sína.

Nú, ég veit að það veldur þér vonbrigðum Birgir, en kristindómurinn kemur líklega ekki til að hverfa með öllu. Það hefur að gera með menninguna sem við hrærumst í. Við erum alinn upp við að allt megi draga í efa, að það séu ekki til neinn endanlegur sannleikur. Svona erum við bara á Vesturlöndum. David Hume sagði að maður ætti bara að treysta því sem maður vissi, en um leið draga í efa það sem maður ekki var viss um.

Gísli 12.02.2004 klukkan 18:38#

- - - 0 0 0 - - -
Ég hef oft velt því fyrir mér að fara að hætta þessu andófi gegn kristniboði og almennu innræti hindurvitna. En Guð bara skapaði mig með svona stóra réttlætiskennd og ég get barasta ekki þolað mönnum það að hagnast á heimsku annarra, verð að ljúka upp munni.

Og í nútímasamfélagi er hið trúarlega áreiti svo mikið að maður kemst varla í gengum heilan dag án þess að verða fyrir bögginu. Og þá læt ég einfaldlega eftir mér að pústa út á netvöllum.

Kjötheimar losna nær alveg við tuðið í mér, ég garga bara vörtjúallí.

En þetta var fín hugleiðing hjá þér, Gísli.

Birgir Baldursson 12.02.2004 klukkan 18:51#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com