Laugardagur 21. febrúar 2004

Bronze VS Corpse

Við Gummi P. sátum í gær inni á Hressó, sem oft áður og framleiddum fyrirtaks heilaspuna hvor um annan þveran. Talið barst auðvitað fljótlega að sígildu umfjöllunarefni - fegurð kvenna.

Þannig háttar til á Hressó að gengilbeinurnar eru hver annarri fegurri. En ætli hinar tvær dekkstu í hópnum beri ekki af í glæsileika, það getur verið nánast óbærilegt að virða þær fyrir sér.

Við fórum auðvitað af stað með þetta, en umræða þessi er gömul og ný hjá okkur. Við erum þess báðir fullvissir að löngun hvítra karla til bronslitaðra kvenna, eða kvenna með ólíka genetík sé meiri en löngunin til að brída með þeim sem eru jafn-trélímshvítar og við sjálfir. Ég hef smættað þetta niður í það að það hljóti að vera innbyggt í alla að vilja að afkvæmi sín hafi sem fjölbreyttast genamengi að baki sér, slíkir einstaklingar hljóti alltaf að verða hæfari en hinir sem nær eru því að teljast úrkynjaðir í genetísku samhengi.

En Gummi fór þarna að velta fyrir sér spurningunni hvort þetta væri mjútúal, hvort glæsilegar dökkar meyjar hefðu auga fyrir litleysi okkar arfgerðar. Ég hélt ekki.

Því þarna kemur ok siðmenningarinnar og yfirskrifar hróp genanna. Hinn hvíti karlmaður er í okkar eigin huga hálfgert afstyrmi, enda búinn að kúga hitt kynið og hina kynþættina um árþúsundir. Ég er einhvern veginn sannfærður um að þetta hljóti að móta afstöðu fagurbrúnna kvenna í garð okkar.

Og þótt svo væri ekki þá stendur hin gullni húðlitur einfaldlega hinu glæra skinni framar í fagurfræðilegu tilliti. Eða það finnst manni sjálfum a.m.k. Og varla getur korpsið staðist samanburð þegar hann liggur upp við hið fagurbrúna hold og hægt í einni sjónhendingu að bera þetta saman. Ætli ég myndi ekki æla yfir sjálfan mig ef ég vaknaði upp með slíkt dásemdardýr við hliðina á mér og sæi muninn "svart á hvítu"?

Hver skyldi afstaða hinna dökklitu vera til þessara mála?

Birgir Baldursson kl. 17:47 - efni: smættun - vísanir (0)



Viðbætur
Furðulegt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

JH 23.02.2004 klukkan 22:25#

- - - 0 0 0 - - -
Ég var að kaupa mér Skáldatíma eftir Laxness og rekst á það að ég er ekki einn um brons-versus-korps komplexinn:

Ég get ekki gert að því að mér hefur ævinlega þótt allur hörundslitur fallegri en hvítra manna sem svo eru nefndir, enda varð ég strax feiminn þegar ég sá hvurnin þessi var litur. Þetta var nefnilega sannur blámaður, hann var svo blár að það sló á hann grænum lit einog hrafn í haustsólskini; þaráofan var hann prins sem heitir á þeirra máli ras. Sjaldan hef ég skammast mín eins mikið fyrir hinn rauðfjólubláa lit hvítra manna manna [svo] einsog þegar við vorum sestir hlið við hlið uppá pallinum.
Birgir Baldursson 28.02.2004 klukkan 23:25#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com