Þriðjudagur 02. mars 2004

Ekkert leyndarmál lengur

Það er ekki verjandi að halda þessum upplýsingum til hlés lengur og tala í gátum. Í dag fórum við Sigurður Már Harðarson (bróðir Orra) niðrá fyrirtækjaskrá og lögðum inn pappíra til stofnunar einkahlutafélagsins Jóka ehf.

Og í gær fóru í loftið frumdrög að vefsíðu fyrirtækisins (auðvitað í Movable Type), þar sem til stendur að bjóða framleiðsluvöruna okkar, bæjarblaðið Birtíng, til aflestrar á pdf, auk daglegra frétta.

Stílsniðið þarna er enn mjög hrátt, en þetta verður í stöðugri þróun fram að útgáfudegi fyrsta tölublaðs.

Birgir Baldursson kl. 18:39 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Brill, hlakka til að lesa ;)
Vantar starfsfólk?
Ég er komin með leið á vinnunni minni ;)
En ég er líka leið á Akranesi þannig að... Neinei.

Sísí 04.03.2004 klukkan 09:32#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com