Sunnudagur 07. mars 2004

Nöfnin í kladdanum 2: Aðalheiður

Það er þetta með hvolpavitið. Nánari upprifjun á bernsku minni leiðir í ljós að kynhvötin var ólgandi hið innra allt frá því í frumbernsku.

Besti vinur minn í æsku hét Víðir og var í næsta árgangi á eftir mér. Mér fannst það mjög miður að hann skyldi ekki vera jafnaldri minn og við ekki í sama bekk. Við vorum nefnilega óaðskiljanlegir.

Aðalheiður, eða Heiða, bjó beint á móti Víði í Hlégerðinu. Og hún lenti með mér í bekk.

Í sjö ára bekk sátum við Heiða saman í tímum, af því við þekktumst. En fljótlega dundi á mér eineltisþrýstingur frá öðrum strákum í bekknum, því það þótti ekki par fínt að sitja við hliðina á stelpu. Ég færði mig því og sat lengst af við hliðina á Halla.

Við Heiða höfðum verið mjög góðir vinir þar til þarna var komið. Til að sýna strákunum að mér væri ekkert of vel við hana tók ég upp á því að safna liði sem síðan gekk um skólalóðina einhverjar frímínúturnar og söng (lag: Oh my darling, Clementine):

:: Heiða grýla
Heiða grýla
Heiða grýla í fjöllunum ::

Meðan á þessu stóð sá ég út undan mér að Heiða var farin að gráta þar sem hún stóð í stelpugeri. Þetta skar mig í hjartað þá og gerir enn.

En öll barnaskólaárin liðu án þess að ég hefði nokkur samskipti við hana, þótt við værum saman í bekk. Ég sé eftir því.

Þegar við Víðir vorum ellefu ára og búnir að skoða óhóflega mikinn skammt af klámblöðum þeim sem lágu frammi á heimili hans, fengum við þá hugmynd að ríða Heiðu. Öll efri hæðin hjá Víði var óinnréttuð og þar var hann búinn að koma fyrir gömlum dívan og ýmsu dóti. Þetta var kjörið athvarf til ástarleikja.

Við löbbuðum yfir götuna og spurðum eftir Heiðu. Hún var ekki heima og málið datt upp fyrir. Spurning hvað hefði gerst ef hún hefði komið með okkur heim til Víðis. Nauðgun? Eða kannski hardkor kynlíf með (ó)upplýstu samþykki allra viðstaddra? Hver veit.

Ég veit bara að skömmu síðar flutti Heiða til Danmerkur, þar sem móðir hennar bjó. Hún kom svo í heimsókn til íslands árið eftir og var þá greinilega komin á kynþroskaaldurinn. Við Víðir bókstaflega slefuðum yfir henni. Þau komu saman í heimsókn til mín og við hlustuðum á "A Night at the Opera" með Queen. Heiða talaði bara dönsku í þessari heimsókn og það gerði hana bara enn girnilegri.

Ég var greinilega mjög graður krakki.

Birgir Baldursson kl. 15:44 - efni: dýrðin - vísanir (0)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com