Hemma Gunn syndrómið
Hafið þið tekið eftir því að Hemmi Gunn talar alltaf hlæjandi. Honum er fyrirmunað að láta út úr sér eina setningu án þess að reyna að bera orðin fram með einhverjum svona hláturskrampa. Þetta er einhver svona hress-taktík hjá honum og ætlað að kæta tilheyrandann.
Mér þykir þetta ákaflega hvimleitt.
Biskup Íslands, Kalli Sibb, notar milda útgáfu af þessu sama. Þegar hann tjáir sig byrjar hann alltaf með grafalvarlegan svip, en eftir því sem líður á efnisgreinina færist vel æft bros hægt og rólega yfir andlitið, svona eins og til að undirstrika að honum líði vel með það sem hann er að segja.
Þetta virkar sennilega vel á marga en áhrifin á mig eru þau að geta ekki varist því að láta mér detta í hug að maðurinn sé sikkópati.
Birgir Baldursson kl. 14:08
-
efni: almennur heilaspuni
-
vísanir (0)
Mér finnst Hemmi frábær og ótrúlegt að hann geti hlegið eftir allt sem hann hefur lent í!
smari 30.04.2004 klukkan 13:42#
- - - 0 0 0 - - -


