birtíngur byrjaður að skúbba
Á fjórða tímanum í dag fór bíll í sjóinn hér á Skaganum og á birtingur.com var frétt með mynd komin í loftið klukkan 16:13.
Birgir Baldursson kl. 17:59
-
efni: almennur heilaspuni
-
vísanir (0)
Það er gaman að vera fyrstur með fréttirnar, en ágætlega færi nú líka á að uppfæra fréttina og greina aðeins frá því hvað þarna átti sér stað.
ÓKÁ 31.03.2004 klukkan 10:59#
- - - 0 0 0 - - -
Við erum enn að koma blaðinu á laggirnar og höfum í raun ekki tíma enn til að híma eftir því að bíll sé hífður upp úr höfn.
- - - 0 0 0 - - -
En það kemur, það kemur...
Birgir Baldursson 31.03.2004 klukkan 13:09#Afdrif fólksins í bílnum hafa verið í öðrum fjölmiðlum og óþarfi að uppfæra fréttina þess vegna. Það stundum er gaman að vera fyrstur, en svo eru aðrar fréttir þess eðlis að óskemmtilegt er að segja frá.
- - - 0 0 0 - - -
Gangi ykkur annars vel með blaðið, vonandi berast líka einhver eintök á höfuðborgarsvæðið svo áhugafólk um fjölmiðla fái betur fylgst með.
Þið farið kannski að dæmi Gluggans á Selfossi og bjóðið PDF útgáfu á Netinu? Þannig má líka með góðu móti halda því fram við auglýsendur að blaðinu sé dreift um allt land og víða um heim.
ÓKÁ 31.03.2004 klukkan 16:11#Já það rétt að óþarfi að uppfæra fréttina hér í bloggi birtíngs, en þessu máli verður auðvitað gerð fullnægjandi skil í blaðinu sem kemur út á föstudag.
Það er líka rétt hjá þér ÓKÁ að það er ekkert skemmtilegt að segja frá slíkum harmafregnum en það er hins vegar metnaðarmál hvers fjölmiðils sem sinnir fréttamennsku að vera fyrstur með fréttirnar - ekki satt?
Við ætlum að láta blöðin liggja á vefnum á pdf formi - eins og þú sérð á birtingi.com - og höfum kynnt þá hugmynd hugsanlegum auglýsendum.
Annars takk fyrir góðar kveðjur,
góðar stundir ... Sigurður Már 31.03.2004 klukkan 18:08#