Föstudagur 02. apríl 2004

Óprenthæft blað

Að maður skuli ekki vera búinn að missa vitið!

Það var allt í gúddí hér á birtíngi fram eftir degi í gær, við að skrifa síðustu fréttirnar og leggja lokahönd á auglýsingar. Höfðum tíma til klukkan 21 til að skila af okkur blaðinu til prentunar. Vorum reyndar orðnir dálítið lúnir, lítið búnir að sofa þessa vikuna og höfðum varla litið upp úr þessu.

En síðdegis byrjaði allt að ganga á afturfótunum. Umbrotsforritið strækaði á að smíða pdf skjal fyrir prentunina og við helltum okkur út í að leita allra ráða. Klukkan 18 misstum við svo netsambandið og gátum þar af leiðandi ekki klárað ákveðnar fréttir, auk þess sem pdf-ið þurfti að sendast suður í tölvupósti.

Greining á netsambandi benti til að vandinn lægi hjá Símanum en ekki okkur. Mér þótti þó grunsamlegt að við náðum ekki sambandi milli tölva hér á innra netinu heldur. En við bölvuðum bara í hljóði og síðustu greinarnar voru settar inn þannig að annar okkar las þær af tölvuskjá og hinn hamraði þær inn í umbrotsforritið.

Við vorum orðnir stressaðir mjög, fyrir nú utan það að ein stór auglýsing hafði ekki skilað sér þegar deddlænið nálgaðist. Við höfðum því samband við prentsmiðjuna náðum þeirri þrautalendingu að prentskjalið myndi berast þeim í morgun og auglýsingin yrði svo að sendast beint til prentsmiðjunnar frá auglýsingastofunni.

Allt kvöldið og fram á nótt fór svo í að reyna að fá umbrotsforritið til að virka. Ekkert gekk og niðustaðan varð sú að Sigurður Már fór í morgun með umbrotsskjalið og myndirnar á geisladiski suður í prentsmiðjuna. Verst er þó að þegar það er opnað í tölvum sem hafa annarsskonar prentara tengdan fer öll hönnun úr skorðum.

Sigurður er núna í prentsmiðjunni að endursetja upp blaðið ásamt fagmönnum þar á bæ og ég hamast við að reyna að fá þetta til að virka hér. Tölvurnar eru farnar að taka upp á því að frjósa og allt er þetta yfirmáta hektískt. Maður er algerlega ósofinn og dofinn og útséð með að blaðið komist í búðir hér á tilsettum tíma. Ætli maður verði ekki að keyra þetta út í kvöld og fyrramálið.

Ef þetta verður veruleikinn í hvert sinn sem blaðið kemur út er spurning hvort þetta sé þess virði. Ef þið sjáið mig ráfandi um úti á götu, bullandi einhverja þvælu þá vinsamlegast takið í höndina á mér og leiðið heim í rúm.

Birgir Baldursson kl. 15:55 - efni: - vísanir (0)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com