Fimmtudagur 08. apríl 2004

Vestur

Jæja, það fór þá aldrei svo að maður þeysi ekki til Ísafjarðar um helgina.

Ég verð ekki að spila neitt, en mæti í góðum félagsskap gönguklúbbsins Blómeyjar. Stefnan er jafnvel sett á fjallið Erni, þarna hinu megin fjarðar. Kemurðu með, Skúli?

Svo verður horft á bandið dr. Gunni um kvöldið og hinir dásamlegu tómhyggjutextar numdir beint úr munni skáldsins:

Apar í skóginum
kviðu ekki vetrinum
þeim lá aldrei á
og hugsuðu bara smá
svo stækkuðu heilarnir
og þá komu allir fokking feilarnir
því hausar fylltust af tómri vitleysu
trúarbulli og stjórnmálaþvælu - hei!

Birgir Baldursson kl. 22:14 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Nei, ekki á ég nú heimangengt en ég hitti þig kannske um kvöldið. Sýnist ekki veita af andlegum sálum þarna.

Skúli 09.04.2004 klukkan 18:27#

- - - 0 0 0 - - -
Ísafjörður er dásamlegur.

ssska 18.05.2004 klukkan 19:46#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com