Laugardagur 10. apríl 2004

Eitt lítið upphrópunarmerki

Sökum öfugs sólarhrings (alltaf sama sagan) hef ég í nótt setið uppi og lesið gamlar greinar um trú og trúmál og skemmt mér vel.

Bitastæðasta stöffið eru athugasemdasúpurnar hér og hér. Í þeirri fyrri eru stóru spjótin notuð óspart, enda ljóst að guðfræðingarnir þarna tóku því sem gefnu að ég væri á háa C-inu allan tímann.

Ætli eitt lítið upphrópunarmerki í fyrstu athugasemd hafi ekki plantað þeirri hugmynd í koll þeirra:

Sammála! Hættið að eltast við guðdóminn og farið að njóta lífsins.

Í það minnsta fara næstu metrar síðunnar í það að ásaka mig um fúkyrðaflaum og hvers kyns gjamm, þótt ég hafi reynt að vera málefnalegur í hvívetna.

Guðfræðingarnir hafa gegnum allar þessar færslur örugglega heyrt mig fyrir sér hrópandi og gargandi. En þeir ættu að prófa að lesa þetta í gegn aftur og setja núna yfirvegaða rödd Jóns Hannesar Stefánssonar útvarpsþular í tilsvör mín.

Við Jón Hannes sándum líkt.

En það kom mér mest á óvart gegnum lesturinn á þessu öllu að Þorkell spyr okkur Matta einhversstaðar hvaða siðferðislegar forsendur við gefum okkur, fyrst við höfum ekki trúna.

Augljóst að hann hafði fram að því ekki látið sér til hugar koma að hægt væri að halda á lofti háum siðferðisstandard nema gegnum trú.

En djöfull erum við Matti rökfastir þarna. Hvað eftir annað komu bombur frá guðfræðingunum sem lesandinn ég spurði mig í spenningi um hvernig maður myndi nú svara. Og alltaf reyndist tilsvarið brilljant!

Það er ekki oft sem ég er stoltur af verkum mínum, en þegar kemur að umræðum um trúmál þá dansar gjarna í mér heilinn.

Birgir Baldursson kl. 08:04 - efni: trúmál - vísanir (0)



Viðbætur
Ég verð að játa að ég kíki stundum yfir gamla spjallþræði hér og þar og dáðist að rökfestu okkar... og hógværð ;-)

Matti Á. 13.04.2004 klukkan 00:54#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com