Hitler og Kombóið
Lag: Kombóið
Texti: Adolf Hitler
Þegar Kombóið fór í stúdíó að vinna sína fyrstu plötu, árið 1994, vorum við í hellings textavandræðum. Ellen átti þarna nokkur lög með fullburða textum, en þau lög sem við höfðum öll búið til saman voru með einhverjum bulltextum sem þurfti mikið að vinna í.
Ellen fékk bróður sinn, Pétur D. Kristjánsson, til að vinna með sér nokkra texta og ég samdi eitt stykki, en þrátt fyrir það voru enn eftir einhver vandræðalög.
Vinur minn, Sigurður Björnsson vormaður, hafði um þetta leyti lánað mér bókina Mein Kampf, einhverja þá leiðinlegustu bók sem ég hef nokkurntíma reynt að lesa. En í þessum vandræðum fékk ég þá hugmynd að láta Ellen bara syngja uppúr henni valinn kafla (þar sem Hitler rausar eitthvað um hvað París sé ömurleg borg) og skrá svo karlinn sjálfan fyrir textanum. Mér fannst þetta þá (og finnst enn) alveg fyrirtaksleið til að hæðast af hugmyndafræði nasismans, breyta höfundi hennar í popptextasmið. En þessu var hafnað, sennilega vegna þess að fólk misskildi ásetninginn og hélt að ég væri sjálfur hallur undir nasisma.
En hugmyndin er enn til. Ef ykkur vantar dægurlagatexta er hægt að fara ýmsar leiðir. Í árdaga söng Björk Guðmundsdóttir upp úr íbúatali Kópavogskaupstaðar frá nítján hundruð sextíu og eitthvað, á tónleikum með Stífgrím í Tónabæ. Hún söng þarna líka upp úr gömllum þjóðsögum og ævintýrum og fyrirmælum um hvernig flokka á ull af sauðfé.
Og ég er enn á því að Hitler litli, sem var voða voða vondur, gæti sómt sér vel sem höfundur texta aftan á plötuumslagi. Bara fyrir sjokkeffektinn.


