Miðvikudagur 02. júní 2004

Lýðræðinu borgið í bili

Í síðasta birtíngi orti ég þennan leiðara:

Aumingja lýðræðið

birtíngur er að velta því fyrir sér hvort við búum í fasistaríki. Ekki er nóg með að stjórnvöld hafi að undanförnu komið með ýmsar vafasamar uppástungur sem setja frelsi okkar skorður, svo sem að leyfa hleranir án dómsúrskurðar, eða að segja megi fólki upp án fyrirvara og án skýringa, heldur hafa þau seilst lengra og lengra í þá átt að yfirtaka löggjafarþingið og stöðva þingræðisleg vinnubrögð.

Við höfum horft upp á formenn stjórnmálaflokkana keyra í gegn hvert málið af öðru á fítonshraða með eigin þingmenn í gíslingu. Enginn stjórnarþingmaður má leyfa sér sjálfstæða skoðun lengur, heldur gildir liðsheildin, að kjósa í takt við vilja foringjanna. Það hlýtur því að vera auðveldasta starf í heimi að vera stjórnarliði þessa dagana, ýta á einn takka eftir forskrift og kannski flytja frumvörp sem leka úr pennum ráðherranna.

Það er eitthvað athugavert við þingræðisskipulag þar sem löggjafarvaldið er undir hæl framkvæmdavaldsins. birtíngur sér enga aðra leið í stöðunni en aðskilja með öllu þessar tvær valdastofnanir. Ráðherrar eiga ekki að sitja á þingi og flytja frumvörp, heldur ætti framkvæmdavaldið einungis að hafa það með höndum að taka við lögum frá alþingi og stjórna í krafti þeirra, rétt eins og dómsvaldið dæmir í takt við þau.

Þingræði, þetta fulltrúaform lýðræðis, er ekkert þingræði ef stjórnvöld halda þinginu í herkví. Meðan þessi skipan er á má með réttu fullyrða að hér ríki ekkert lýðræði, heldur fullkomið einræði. Allt vafstur þingsins verður að innihaldslausum skrípaleik þar sem öll mótrök andstöðunnar eru sjálfkrafa hunsuð og sjálfstæð hugsun stjórnarþingmanna að engu höfð. Alþingi er með þessu fullkomnlega valdalaus stofnun.

Já við búum í fasistaríki.

Ólafur Ragnar hefur með framgöngu sinni í dag bjargað lýðræðinu frá glötun. Hann má með sanni teljast verndari þess. En eftir stendur að aðskilja þarf framkvæmdavald og löggjafarvald. Er ekki rétt að nota tækifærið og koma því í kring núna?

Birgir Baldursson kl. 21:42 - efni: stjórnmál - vísanir (2)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com