Fimmtudagur 03. júní 2004

Nú skulum við semja nýja stjórnarskrá

Sprenglærðir lögmenn standa ráðþrota gagnvart stjórnarskránni, nú eftir að Ólafur Ragnar sleppti því að skrifa undir fjölmiðlalögin. Einn bendir á að í 13. grein sé kveðið á um að ráðherra skuli fara með vald forseta, en annar vísar því á bug með þeim rökum að vald forseta sé löggjafarvald og útilokað geti verið að framkvæmdavaldinu sé gert kleift að hlutast þannig til um löggjafarvaldið.

En þannig er það nú samt. Framkvæmdavaldið situr inni á alþingi og greiðir atkvæði, flytur lagafrumvörp og skikkar samherja til að kjósa um þau eftir fyrirmælum. En nú er tækifæri til að breyta því, þegar menn eru að komast á þá skoðun að stjórnarskráin sé úrelt.

Grípum þetta tækifæri og færum þingræðið með afgerandi hætti í hendur þingsins. Aðeins þannig er lýðræðinu borgið.

Birgir Baldursson kl. 13:39 - efni: stjórnmál - vísanir (0)



Viðbætur

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com