Mánudagur 28. júní 2004

Hvaða hvaða?

Það var einhver gaur í hádegisfréttunum rétt í þessu að gefa skít í forsetakosningaúrslitin á þessum forsendum:

Þeir sem ekki vildu Ólaf Ragnar höfðu um þrjá kosti að velja: Sitja heima, skila auðu, eða velja annan hvorn hinna. Samtals völdu um 60% kjósenda einhvern þessara kosta og því er kosning Ólafs áfall fyrir hann og ég veit ekki hvað.

Bíddu, hvað fékk Vigdís stóran hluta atkvæða þegar hún bauð sig fyrst fram? Ef ég man rétt þá fékk hún tæp 40% greiddra atkvæða. Og þá á eftir að reikna með þeim sem sátu heima.

Er þá ekki hægt að nota nákvæmlega sömu rök til að halda því fram að úrslit þeirra kosninga hafi verið áfall fyrir hana? Komm on folks, annað hvort vinna menn kosningar eða ekki. Og Ólafur var með margfaldan atkvæðafjölda næsta manns.

Ég veit a.m.k. um einn sem styður Ólaf en sat heima.

Birgir Baldursson kl. 13:31 - efni: stjórnmál - vísanir (0)



Viðbætur
Hárréttur punktur. Það er óttalega ódýrt trikk hjá andstæðingum Ólafs að reyna að eigna sér öll atkvæðin sem ekki skiluðu sér.

Már 28.06.2004 klukkan 16:12#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com