Miðvikudagur 30. júní 2004

Lágt plan samræðulistarinnar

Í fréttayfirlitinu núna rétt áðan kemur fram að Hannes Hólmsteinn telji Helgu Kress ekkert erindi eiga í umræðuna um meintan ritstuld hans, þar sem hún sé í ákæruliðinu.

Þetta segir mér það eitt að hann getur ekki svarað rökum hennar. Helga setur fram vel grunduð rök gegn Hannesi, en í stað þess að svara þeim málefnalega kemur hann bara með eitthvað svona.

Af hverju eru þjóðmálin hér svo oft á svona ómálefnalegum nótum? Kunnum við ekki samræður?

Birgir Baldursson kl. 18:02 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Hannes Hólmsteinn er nú búinn að tala í Speglinum og kom nánast ekkert inn á málflutning Helgu um ritstuldinn. Beitti í staðinn gömlu rökræðutrikki að beina athyglinni að öðrum hlutum, auk Ad hominemsins sem ég talaði um hérna í greininni. Gerir mikið úr því að Helga segi ekkert nýtt koma fram (kemur ritstuldinum ekkert við) og eyðir svo drjúgum tíma í að sýna fram á hvað þarna kemur nýtt fram.

En Hannes, hvað um rök Helgu um meðferð heimilda?

Birgir Baldursson 30.06.2004 klukkan 18:35#

- - - 0 0 0 - - -
Helga sagði ekkert nýtt í Speglinum. Hún sakar mig um ritstuld, en ritstuldur er í mínum huga, eins og ég sagði í Speglinum, þegar menn leyna því, hvaðan þeir taka efni. Ég leyndi því hvergi og vann úr því á sambærilegan hátt og Halldór Kiljan, nema hvað ég vísaði í það og tók sérstaklega fram í eftirmála mínum, að ég gerði það. Helga fór með rangt mál, þegar hún sagði, að ekkert nýtt væri í bók minni. Þar er ótrúlega margt nýtt, sem ég gróf upp ásamt aðstoðarmanni mínum, en hann vann mánuðum saman í skjalasöfnum. Ég hef raunar birt lista yfir margt nýtt. Helga sakar mig um það, sem ég hef ekki gert, og hún segir ósatt. Það er alvarlegt. Hún braut líka siðareglur háskólans með því að upplýsa ekki um hagsmunatengsl sín.

Hannes H. Gissurarson 14.07.2004 klukkan 15:27#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com