Tækniblaðamenn?
Hún er furðuleg fréttin á RÚV um að Mogginn ætli að segja upp 10 blaðamönnum, vegna þess að breytingar séu að eiga sér stað í tæknimálum og dreifingu.
Hvernig í ósköpunum er hægt að koma þessu heim og saman? Vinna blaðamennirnir líka við tæknimál og dreifingu þarna? Eða er þetta einungis léleg yfirhylming yfir það að blaðið getur ekki haldið úti svona miklu starfsliði lengur?
Uppsögn 10 blaðamanna hlýtur að bitna á efni blaðsins, hinum skrifaða texta. Nema þá að Mogginn sé búinn að fá róbóta til að skrifa í blaðið, eða hafi komist yfir nýja tækni til að auka afköst (þá væntanlega hugsun og úrvinnsluhraða) blaðamanna.
Ég vil fá nánari skýringar.
Birgir Baldursson kl. 18:58
-
efni: almennur heilaspuni
-
vísanir (0)
Nú fatta ég þetta. Þeir ætla auðvitað að láta blaðberana skrifa fréttirnar!
Birgir Baldursson 30.06.2004 klukkan 19:10#
- - - 0 0 0 - - -
Það myndi nú ekki breyta miklu þótt vélmenni skrifuðu í moggann.
Arngrímur 03.07.2004 klukkan 19:23#
- - - 0 0 0 - - -
Ætli tæknimál og dreifing séu nú ekki bara yfirklór. Mig grunar nú frekar að starfsmannahaldi blaðsins blæði fyrir þá ákvörðun að koma blaðinu um þriggja milljarða króna dýrri prentvél úti við Rauðavatn, ákvörðun sem var tekin í öðru rekstrarumhverfi en nú er og Dagblaðið var líka prentað í Moggaprenti.
ÓKÁ 04.07.2004 klukkan 22:45#
- - - 0 0 0 - - -


