Laugardagur 17. júlí 2004

Nöfnin í kladdanum 11: Páll, Ragna, Rakel

Hér kemur fólk sem ég hef ekki mikið af að segja. Þó má með góðum vilja setja saman sæmilega langa færslu með þeim þremur:

Páll

Páll hét reyndar Páll Ingi, en var alltaf lesinn upp sem Páll. Kennarinn ávarpaði hann þó ávallt sem Pál Inga þegar ekki var verið að lesa upp kladdann. Páll Ingi þessi var rólegur, hlédrægur og góðhjartaður. En það er eins og mig minni að hann hafi verið eitthvað útundan hjá okkur þarna í bekknum. Enginn sat við hliðina á honum heilu veturna ef ég man rétt. Ég held að ég hafi þó byrjað eitt haustið á að hlamma mér hjá honum, en Halli var fljótur að véla mig yfir á aftasta borð fyrir miðju, þar sem við vorum vanir að sitja.

Í átta ára bekk var föndurtími þar sem við áttum að mála flöskur með þekjulitum. Kennarinn bað okkur um að fá fallega áfengisflösku hjá foreldrum okkar, en ekkert slíkt var til á mínu heimili. Ég hafði þegar þarna var komið varla séð áfengisflösku og allra síst heima hjá mér, en sú fyrsta sem barst mér í hendur var semsagt frá Páli Inga, þarna í föndurtímanum. Þetta var Dimple, þrístrend flaska og ég málaði einhver blóm í dældirnar á henni, minnir mig og hana alla fjólubláa.

Man það að mér datt þarna í hug hvort foreldrar Páls Inga væru kannski fyllibyttur, fyrst hann gat mætt með fleiri en eina flösku í þennan tíma.

Einhverju sinni gerðum við Páll Ingi heiðarlega tilraun til að verða vinir og leika okkur saman. Hann fylgdi mér þá alla leið heim úr skólanum, en sjálfur átti hann heima beint á móti honum. Víðir vinur minn var á vappi í Hlégerðinu og var greinilega ekkert hrifinn af því að ég væri sýna öðrum leikfélögum athygli, allra síst einhverjum úr Skólagerðinu. Hann espaði mig því upp í að reka Pál Inga út úr götunni okkar og á endanum flæmdum við hann burt með grjótkasti og "Koddu þér burt úr götunni!"

Aumingja Páll Ingi.

Ragna

Af Rögnu man ég bara hvorki haus né sporð, nema ef vera skyldi einn blokkflaututími í Félagsheimili Kópavogs, áður en við byrjuðum í barnaskóla. Ég var semsagt í forskólanámi á blokkflautu hjá Elísabetu Erlingsdóttur (Sjöbba líka) og ég held það hafi verið í pásu (getur verið að það hafi verið pása?) hafi þessi Ragna talað fjálglega um að hún væri með sykursýki og lýsti einkennunum. Ég hafði aldrei heyrt minnst á þann sjúkdóm fyrr og fannst hann bara mjög eftirsóknarverður. Þurfa að vera með sykurmola eða nammi á sér til að fá sér ef maður yrði skyndilega slappur. Hljómaði bara mjög vel.

En það er ekkert víst að þetta hafi verið sama Ragnan.

Rakel

Rakel held ég að hafi verið tvíburi og hitt eintakið hét Stebbi. Þau voru a.m.k. systkini. Stebbi þessi var eitthvað veikur og Rakel var mikill verndari hans. Ég man að einhverntíma, áður en við byrjuðum í sjö ára bekk, var ég að stríða Stebba og Rakel kom askvaðandi og spurði hvað þetta ætti að þýða. Ég sagðist bara hafa verið að stríða honum aðeins en þá kom þetta tilsvar: "Stríða! veistu ekki að stríða er það sama og stríð!"

Og ég skammaðist mín niður úr jörðinni fyrir að hafa efnt til styrjaldar þarna í götunni heima. Búinn að sjá minn skammt af fréttamyndum í sjónvarpinu og hugnaðist ekki hernaður þá frekar en nú.

Og eftir þetta lagði ég lítið lag mitt við Stebba og Rakel. Var skíthræddur við Rakel.

Birgir Baldursson kl. 00:42 - efni: dýrðin - vísanir (0)



Viðbætur
Jah, það var svosem kennaranum líkt að biðja krakkana um það að koma með fallega vínflösku í tíma til málunar, ha ha ha.
Ég man að árið 1972 var eitt af mínu herbergis skrauti á beat hansahillunni minni,mjög svo falleg Rósavínsflaska,fallega græn með fallegum miða og falleg lögun á flöskunni. Þetta var í tísku á þessum árum að hafa svona flöskur til skrauts og líka það að mála á þær,svo maður tali nú ekki um málverk gömlu íslensku meistaranna þarsem klassísk uppstilling var t.d vínflaska, ávextir og eitthvað annað dót, þessar myndir voru gjarnan kallaðar - Uppstilling. Ó, jamm og já.

SS SKA 17.07.2004 klukkan 02:18#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com