Múslimafordómar
Svaraði múslimanum Ibrahim tæpitungulaust á Vantrú í kvöld, eftir að hafa tvístigið með það í allan dag. Af hverju þetta hik?
Ætli það sé ekki að grassera einhver fordómafull mynd í hausnum á mér um að músliminn muni svara svona hörðum árásum með ofbeldi og aftökum. Það er þá eftir allt svona stutt í slíka hleypidóma hjá manni!
Sjáum hvort hann svari með sjálfsmorðsárás á mig :)
Ég man að Hilmar Örn Hilmarsson talaði um það fyrir svona 10 - 15 árum að við ættum yfir höfði okkar massíva innrás múslima, að þeir myndu leggja undir sig Vesturlönd. Kannski voru það spádómar Nostradamusar sem inspíreruðu hann til þessa þvaðurs, en hann talaði um að það væri eins gott að fara að læra Kóraninn utan að á arabísku, því þeir sem ekki snerust til islam (eða þættust gera það) yrðu drepnir.
Ég man að ég velti fyrir mér hvort það væri ekki bara betra að vera dauður en undir slíkum járnhæl heimskunnar og harðneskjunnar, sem þetta islamsdót greinilega var, samkvæmt Hilmari. Ekki það að ég hafi tekið mikið mark á orðum galdravonnabísins, en kannski þessi umræða öll hafi skilið eftir sig þessa ofbeldiskenndu mynd í huganum, mynd sem brýst allt í einu fram í vitundina núna í dag.
Það er að segja tröll í póstulínsbúð sem brýtur allt og bramlar með heimsku og fyrirferð.
En ég er sammála í þér að hann er þarna bara til að fá harkaleg viðbrögð. Kasta sprengju (ekki trolli).
En það er nú bara mín skoðun.
Gabbler 16.09.2004 klukkan 19:15#Gaman að vera dreginn fram, þó ekki nema væri sem rhetórískt tæki, en satt best að segja held ég að smá sódíumpentathól hefði hjálpað. Ég minnist þess að hafa haldið langar ræður um það að hluti arabaheimsins væri að taka upp harðlínutrú sem væri kallaður fundamentalismi, þó að téð undirstaða væri frekar nýleg hreyfing. Og að ég hefði áhyggjur af því hvað þetta lið væri að taka yfir: ég var í Egyptalandi stuttu eftir að Sadat var myrtur og þá var þegar búið að gera magadans útlægann í Kairó. Nokkrum árum síðar kynntist ég vel menntuðu og góðu fólki í Túnis sem var farið að tala á sömu nótum. Ég talaði um hættuna á trúarofsa sem var að verða almennur í þessum samfélögum, -en sem við þekkjum varla nema af afspurn frá þínum fornu slóðum í Kópavoginum.
Nostradamus hef ég raunar aldrei lesið og kannast heldur ekki við tegundarheitið "galdravonnabí". En kannski má útleggja þetta útfrá gúrú góðvinar okkar: Dans læk a galdravonnabötterflæ, stíng læk a galdravonnabí...
kveðjur
Hilmar Hilmar Örn Hilmarsson 24.09.2004 klukkan 21:19#
Endarnir fökkuðust ekki upp, en það var ekki þessu tæki að kenna, heldur einstakri næmni mannskapsins. Og draugagreyin, mundirðu eftir að safna þeim aftur saman á duftform eða ráfa þeir ennþá um sali, þjáðir og þreyttir?
Skemmtilegt gigg annars.
Birgir Baldursson 26.09.2004 klukkan 13:45#Frábær síða!
Hilmar
p.s. góðar fréttir með Charlie Watts, þó mér finnist hann enn slappur á hinu sviðinu. Hilmar Örn Hilmarsson 03.10.2004 klukkan 20:57#
Og nú ertu orðinn slíkur leiðtogi. Til hamingju með það!
Birgir Baldursson 30.10.2004 klukkan 14:15#Það er að vísu bömmer að þurfa að hvíla "Gúrú Bananamarga" og "Swami Ali Bla Bla" partýrútínurnar meðan ég er í forsvari fyrir Ásatrúarfélagið, en költleiðtogavonnabíhneigðir mínar eru svo hetero að það tekur því ekki að minnast á þær.
Ég hef ekki áhuga á því að þrátta við þig og hlakka til þess nú sem endranær að vinna með þér á tónlistarsviðinu, þó það sé viðbúið að það komi góður vonnlæner til að svara þessu.
Við rífum þá bara kjaft á meðan.
Hilmar
Hilmar Örn Hilmarsson 06.11.2004 klukkan 20:25#
Þessi félagsskapur verður að sjálfsögðu til sem antitesa við allt trúarbrjálæðið í heiminum, en öll svona barátta getur tekið á sig óhugnanlega mynd költs, það er rétt athugað hjá þér. Sjáðu bara Ayn Rand!
Ætli þetta nýja embætti mitt muni ekki hvetja mig til hófsemdar frekar en hitt, svo andvígur er ég öllu költbrölti, persónudýrkun og afnámi gagnrýninnar hugsunar. Af hverju í helvítinu getum við ekki bara öll verið frjálsbornar og sjálfstæðar manneskjur sem bera höfuð hátt í stað þess að vera þessir þvættingslepjandi, helgisiðaiðkandi, töfraformúlubullandi hræðslupúkar? Áttu eitthvert gáfulegt svar við því, svo ég tali nú við þig sem költleiðtogi við költleiðtoga?
Birgir Baldursson 07.11.2004 klukkan 00:19#


Hann er augljóslega að gera sér upp skoðanir til þess að fá harkaleg viðbrögð við þeim. Kasta út trollinu, semsé.
Helgi Briem 05.08.2004 klukkan 15:34#