Miðvikudagur 06. október 2004

Friðarsetur

Í dægurmálaútvarpinu áðan var óskaplega hress kona í viðtali út af hugsanlegri byggingu friðarhallar í Reykjavík. Þessi kona talaði fjálglega um alheimsvitund eins og um væri að ræða alþekkt og viðurkennt fyrirbæri.

Og ekki voru spyrlarnir mikið að draga fullyrðingar kerlu í efa, heldur var gaurinn farinn að tala af jafnmikilli innfjálgi um alheimsvitundina, sagðist vona að heimsbyggðin yrði meðvitaðri um hana í framtíðinni og ég veit ekki hvað.

Úff, sem ég skrifa þetta halda þau áfram að ræða alheimsvitundina og gaurinn segir að það sé ekkert mál að ná boðskapnum: "Tengjast alheimsvitundinni og hætta að hugsa, þá kemur friðurinn."

Hann hlýtur að vera að djóka og hæðast af þessu. Trúi varla að nokkur maður sé ginnkeyptur fyrir svona kjaftæði. Og þó, það virðist sama hve boðskapur költfyrirbæra er fáránlegur, það er alltaf nóg af fólki til að gleypa ruglið.

Birgir Baldursson kl. 16:34 - efni: trúmál - vísanir (0)



Viðbætur
Ég heyrði í þessum tveimur síðast á mánudaginn í Dægó. Spjölluðu við Ómar og voru greinilega búnir að læra eitthvað utan að um einhvern veg sem menn eru að spá í að leggja til þess að stytta veginn til Akureyrar um 80km. Svo spurðu þeir Ómar hvort þessi vegur væri gerlegur og þá hélt Ómar stórkostlega ræðu um veðurfarið á svæðinu og þeir vissu ekki gat hvað var að gerast! Það kom svona ...umf...hljóð og þeir spurðu ekki frekar um þetta mál eins og þeir hljómuðu nú vel að sér í upphafi spurningar. Voðalega vel upplýstir um staðsetningar á Íslandi!

Sunna 06.10.2004 klukkan 19:33#

- - - 0 0 0 - - -
Kerling vildi byggja friðarhöll og talaði um alheimsvitund og komst í útvarpið! Ástþór vill verða friðarleiðtogi og honum er varpaði í jailið! Í hvernig landi búum við?

Ég held að allir sem viti eitthvað um alheimsvitund, séu hættulegt fólk!

hemull 07.10.2004 klukkan 15:05#

- - - 0 0 0 - - -
ég trúi á alheimskrúttið. þad er stjörnuþoka út í geimnum, sem lítur út einsog fjólubláu armarnir í súpuauglýsingunni. ég sé þetta fyrir mér í aðflugi, það er einsog ég fljúgi inn í faðm hennar.

hallvardur 08.10.2004 klukkan 09:06#

- - - 0 0 0 - - -
Ég trúi á alheimsrassgatið. Það er endalaust langt í burtu og stundum kúkar það loftsteinum. Sumir þeirra lenda á saklausu fólki. Alheimsrassgatið er vont.

Vésteinn 14.10.2004 klukkan 03:03#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com