Mánudagur 25. október 2004

Kennaraslagurinn

Í Kastljósinu akkúrat núna er kennari að tiltaka hversu mikið tilboð launanefndar sveitafélaganna myndi hækka hann í launum, úr rúmlega 190.000 í kannski 210.000. Og það myndi ekki gerast fyrr en árið 2008. Þetta segir hann eðlilega ekki ásættanlegt og hefur auðvitað mikið til síns máls.

Sveitarfélögin eru búin að bjóða 26% kostnaðarauka. Í upphafi kröfðust kennarar 35%, ef ég heyrði rétt, en var á móti boðið eitthvað um 17% kostnaðarauka. Það er því ljóst að launanefndin er komin hálfa leið til móts við kröfur kennara, en það dugir bara ekki til.

Ég spyr: Geta ekki kennarar bara tekið þessum 26% kostnaðarauka gegn því að hann komist á strax og að laun kennara fylgi síðan einhverri tiltekinni vísitölu? Myndi það ekki líka koma í veg fyrir verkföll í framtíðinni?

Hefur einhverjum dottið þetta í hug, eða dettur engum þetta í hug af því þetta er svo vitlaust?

Birgir Baldursson kl. 19:45 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Ég er ansi hræddur um að síðari skýringin sé rétt Biggi minn.

Daníel 26.10.2004 klukkan 23:51#

- - - 0 0 0 - - -
Er semsagt gersamlega glórulaust að semja um að laun fylgi sjálfkrafa einhverri vísitölu, t.d. neysluvísitölu? Er ekki eitthvað til sem heitir launavísitala? Af hverju þurfa umsamin laun endilega að vera föst krónutala þegar allt annað í samfélaginu hefur breytilegan verðmiða eftir því hvernig árar?

Birgir Baldursson 27.10.2004 klukkan 01:31#

- - - 0 0 0 - - -
Vísitala og skattalækkanir eru vonlaus. Vísitala launa hefur aldrei fylgt almennu verðlagi. Loforð um skattalækkanir ganga sjaldan eftir. Núna er lofað 1% lækkun í tíð Halldórs Ásgrímssonar. Nei, cash is king, það skilja allir.

Jóakim Aðalönd 27.10.2004 klukkan 14:53#

- - - 0 0 0 - - -
En nú var ég ekki endilega að stinga upp á því að launin myndu fylgja launavísitölu. Hvað ef samið verði um að þau fylgi dýnamískt t.d. vísitölu neysluverðs?

Birgir Baldursson 27.10.2004 klukkan 16:32#

- - - 0 0 0 - - -
Það er í sjálfu sér í lagi ef launin eru fín til að byrja með. Lág laun sem hækka með vísitölu verða alltaf of lág. Við erum að tala um að kennaralaunin eru a.m.k. 100.000 krónum lægri en eðlilegt væri. Svoleiðis hækkun sækja menn ekki einn, tveir og tíu.

Daníel 28.10.2004 klukkan 00:26#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com