Föstudagur 29. október 2004

Erfðaskrá

Nú þegar Vantrú er í þann veginn að verða lögformlegur félagsskapur er kannski rétt að hafa það einhversstaðar skjalfest að bókasafn mitt skal í heild sinni hafna hjá félaginu að mér gengnum. Ég gæti orðið fyrir bíl á morgun og eins gott að þessi ágæti stafli endi ekki á fornbókasölu þar sem ekkert fæst fyrir hann.

Þarna kennir margra ágætra grasa. Þórbergur er þarna næstum í heild sinni. Hann kemur einnig fyrir í tveimur heftum Rauðra penna og kennslubókum í esperanto. Nokkrar skáldsögur Laxness eru þarna, en meira er um ritgerðir hans. Hann var súpergóður essejisti. Það er Dr. Gunni reyndar líka, sjáið kjallaragrein dagsins hjá honum. Flott!

Auðvitað er gomma af ritum um trúmál, mannskepnuna, heilastarfið og hin húmanísku fög, ásamt slatta af orðabókum og glás af gömlum pocketbókum, aðallega eftir Erskine Caldewell. Pétur Gunnarsson er þarna næstum í heild sinni, Gubbi og Eldjárn í stórum stíl og innan um er sjaldgæfara dót á borð við Ástu Sigurðar og Normu E. Samúelsdóttur.

Engum sem kemur í framtíðarhöfðustöðvar Vantrúar ætti því að leiðast.

Birgir Baldursson kl. 14:45 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Ha? Kanntu Esperanto?

^cu vi parolas esperante?

Hjalti 29.10.2004 klukkan 23:56#

- - - 0 0 0 - - -
Nah, það get ég ekki sagt. Búinn að byrja að læra þetta mál nokkrum sinnum, en alltaf hefur það dagað uppi. Ég er samt mikill velunnari þessarar tungu.

Birgir Baldursson 30.10.2004 klukkan 00:41#

- - - 0 0 0 - - -
Það vill svo til að ég tók ákvörðun fyrir ansi löngu: Þann dag sem Evrópusambandið tekur esperantó upp sem opinbert mál sitt, þá mun ég gerast Evrópusambandssinni!

Vésteinn 30.10.2004 klukkan 02:13#

- - - 0 0 0 - - -
Áður en dánarbú er gert upp, er gengið frá kröfum skuldunauta. Ef þú hrekkur upp af og skuldar KB banka tíu þúsund kall, býst ég við að Vantrú afsali sér erfðaréttinum í skruddurnar þínar.

Jóakim Aðalönd 30.10.2004 klukkan 08:10#

- - - 0 0 0 - - -
Já, esperanto er að mínu mati það besta sem er í boði, þrátt fyrir marga galla. Td, finnst mér það hafa of mörg hljóð.

Að mínu mati ætti að hætta að kenna dönsku (enda tala Danir og Íslendingar saman á ensku) og kenna esperanto í staðinn. Ísland yrði frábær fyrirmynd.

Hjalti 30.10.2004 klukkan 17:07#

- - - 0 0 0 - - -
Já, esperantíska stafasettið er líka óhentugt út af öllum þessum ^ yfir stöfum. Menn hafa verið að redda því með því að nota annað hvort x eða h, en allt er það hið vandræðalegasta.

En málið er þjált og fagurt fyrir utan þessa litlu ágalla (einhver var nú líka reyndar búinn að nefna hömlu samsetts nafnliðar sem vantar í öll þessi tilbúnu mál). Það skynsamlegasta í stöðunni væri að taka upp þráðinn þar sem honum sleppti við uppgang nazismans og leggja fyrir þing Sameinuðu þjóðanna þá tillögu að öllum aðildarríkjunum verði gert skylt að kenna esperanto sem annað mál heima fyrir.

Birgir Baldursson 30.10.2004 klukkan 17:31#

- - - 0 0 0 - - -
Eins gott að taka fram að þessi færsla gildir ef ég verð enn einstæðingur þegar ég drepst. Hafi ég hins vegar komið mér upp maka og börnum verður það að sjálfsögðu á valdi þeirra að ákveða hvað um skruddurnar verður.

Og svona fyrst ég er byrjaður að tjá mig um dauða minn: Það má hirða úr mér allt og hvað sem er til ígræðslu í aðra eftir minn dag. Og lendi ég í dauðadái þannig að halda þurfi mér á lífi með maskínum og/eða slöngum þá vilj ég líknandi meðferð fremur en viðvarandi hálfdauða. Kippið mér úr sambandi plís!

Og líknarmorð er ekki glæpur í siðferðilegu tilliti. Þið megið alveg kæfa mig með kodda :)

Birgir Baldursson 07.05.2005 klukkan 19:45#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com