Þriðjudagur 02. nóvember 2004

Athyglisvert

Rétt í þessu var sýnt viðtal Katrínar Pálsdóttur fréttamanns við frambjóðanda demókrata til öldungardeildarþings (heyrðist mér). Hann var ánægður með hvernig Bush hefur tekið á hryðjuverkamálum eftir árásirnar á turnana 2001.

Röksemdafærslan var þessi: Hvað gerðum við þegar terroristar sprengdu þarna? Ekki neitt. En þegar þeir sprengdu þarna? Ekki neitt heldur. En Bush tók til óspilltra málanna eftir tvíburaturnana, enda þýðir ekki að láta fauta vaða yfir sig. Það þarf að svara fantabrögðum þeirra af fullum þunga.

Bíðum við. Í augum terroristanna eru Bandaríkin fautinn í þessu samhengi. Ástæður terrorismans er fyrst og fremst svar við yfirganginum sem utanríkisstefna Bandaríkjanna hefur í för með sér. Þessi terroristar eru því að gera það sem frambjóðandinn segir að sé málið - svara fantabrögðunum af fullum þunga. Og virkar það til að lækka rostann í búllíinum?

Ekki sýnist mér það.

Birgir Baldursson kl. 23:36 - efni: stjórnmál - vísanir (0)



Viðbætur
Terroristar hvað?
Hvað áttu Bandaríkjamenn að gera eftir 9/11 ?
Þú sem ert svona mikill penni hr Birgir trommuleikar.... gefðu mér gott dæmi kv Jonna

Jonna 13.11.2004 klukkan 13:55#

- - - 0 0 0 - - -
Nú auðvitað draga herlið sitt til baka, leggja herinn niður og hætt að búllía heiminn. Koma frekar á eðlilegum viðskiptasamböndum og vinna að umbótum í heiminum með aðstoð Sameinuðu þjóðanna og mannréttindasamtaka.

Segðu mér, Jonna, hvaða lausn hefur hingað til fólgist í því að svara ofbeldi með ofbeldi? Segjast þessir menn ekki vera kristnir? Hvað nákvæmlega skilja þeir ekki í orðum þessa meistara sem þeir segjast dýrka?

Um leið og menn úthrópa terroristana sem terrorista, en gera sér ekkert far um að skilja mótívasjónina á bak við, líta í eigin barm og reyna að átta sig á hvað menn hafa sjálfir gert rangt, þá er ekki von til að nokkrar framfarir verði í heiminum.

Birgir Baldursson 13.11.2004 klukkan 16:15#

- - - 0 0 0 - - -
sæl aftur!
Ég held að það sé ekki lausnin að draga herliðið til baka....
Bin Laden hatar vestrænar þjóðir og þá helst Bandaríkin og hans æðsta markmið er að afmá landið í burt.
ÞAð hlakkaði líka í kallinum þegar hann fylgdist með í beinni útsendinu þegar Turnarir féllu.
Árásin hefði verið hvort sem her USA hefði verið á þeirra svæði eða ekki.
kv Jonna

jonna 15.11.2004 klukkan 19:56#

- - - 0 0 0 - - -
Æ, sérðu ekki samhengið? Af hverju eru til hópar terrorista/frelsishetja sem hata Bandaríkin? Er það ekki af því að Bandaríkin hafa verið með yfirgang í löndum þeirra?

Hver er besta aðferðin til að uppræta hegðun terroristanna/frelsishetjanna? Drepa allt og alla með klasasprengjum og skilja allt eftir fljótandi í blóði? Eða með því að uppræta orsök hatursins, hætta einfaldlega yfirganginum?

Dæmi hver fyrir sig. Í mínum huga er svarið ljóst.

Birgir Baldursson 16.11.2004 klukkan 00:59#

- - - 0 0 0 - - -
ÉG held að fólk sé að miskilja hlutina hrapalega, eigum við að horfa upp á fátækt og hugursneið án þess að gera neitt?
Ég tel að Bandaríska þjóðin telji sig vera að standa með þeim sem minna mega sín...
Þessi ríku einsæðisherrar sem mergsjúga þann fátæka er sá mesti viðbjóður sem ég hef vitað til. Byggja sér gullhallir og nauðga hverju sem er....ekki segja að þeir sem hafa getur til megi ekki stoppa þetta. Ekki gerir auminga fólkið það, það er skotið á færi ef það opnar munninn. Sjáðu talibana, eigum við að segja æi greyin voðalega er farið illa með fólkið...nei ég tek ofan fyrir öllum þeim sem leggja líf þjóðar sinnar að veði til að stoppa nokkra geðsjúklinga sem drepa miljón sakleysingja.
p.s. Birgir ekki segja mér aftur að Bandaríkin séu morðóðir...og hinir ekki !!
kv Jonna

Jonna 16.11.2004 klukkan 13:55#

- - - 0 0 0 - - -
Ójú, Jonna mín, ég held því fullum fetum fram að verk Bandaríkjastjórnar ráðist af græðgi og valdasýki. Þessir kristilegustu af öllum kristilegu fara ekki rass eftir boðskap hetjunnar sinnar með því að friðmælast við þá sem búa við kúgun af hendi þeirra, heldur svara andspyrnunni með meiri og meiri yfirgangi, svo blóðið flýtur í stríðum straumum. Það er óhæfa og óverjandi viðbjóður.

Þú, Jonna, er blinduð af áróðursmaskínum þessara ógnarafla.

Birgir Baldursson 16.11.2004 klukkan 14:24#

- - - 0 0 0 - - -
hver ég???? blinduð ok.
Getur verið að einhver annar sé það hér á þessari síðu?
Ætli þú yrðir ekki þakklátur er einhver myndi aðstoða þig úr fjötrum viðurstyggðs og angista ?
Ég held það ...
Ætli það séu ekki samantekin ráð hjá þeim sem telja sig trúleysngja (og hrópa það á torgum) að hata Bandaríkin og allt sem þeir gera.
Standa með einræðisherrunum í gullhöllum sínum, baðandi sig í olíu þjóðarinnar.
Áttu góðan dag.
kv Jonna

jonna 17.11.2004 klukkan 09:32#

- - - 0 0 0 - - -
Jonna, þú ert ekki lengur málefnaleg. Samantekin ráð trúleysingja að hata Bandaríkin? Hvaðan kemur þér sú hugmynd? Stend ég með einræðisherrum? Hvaðan kemur þér sú hugmynd? Annað hvort ertu að misskilja mig, eða þá að snýrð viljandi út úr orðum mínum til að koma á mig höggi. Slíkt kallast Straw Man rökvilla og lýsir sér þannig að í stað þess að ráðast að málflutningi andstæðingsins er búin til einhver afkáraleg útgáfa af honum og ráðist á hana, rétt eins og fuglahræða væri sölluð niður í stað manns af holdi og blóði.

Lestu betur það sem ég skrifa. Ég tala um að leita friðsamlegra leiða, koma á eðlilegum viðskiptasamböndum og vinna að því með Sameinuðu þjóðunum og mannréttindaamtökum að koma á umbótum í þessum löndum.

Ég trúi því varla, Jonna, að þér líði vel með allt blóðið sem rennur. Ertu svona blind á áróður Bandaríkjastjórnar um varnarstríð, öxul hins illa og uppblásna hættu sem stafi af Írak og múslimum að þér finnst slátrunin í Fallujah í lagi? Nauðsynleg? Ásættanleg? Hörumleg en nauðsynleg? Hið besta mál?

Komm on, Jonna! Þetta eru voðaverk og því miður er það þessi aðferð hverri Bandaríkjastjórn kann einni að beita. Þetta herveldi veður yfir allt og alla eftir hentugleikum og skilur eftir sig blóði drifna jörð.

Æ fleirum er að ofbjóða. Menn í störfum fyrir stjórnina segja af sér unnvörpum til að geta gagnrýnt hana á sama hátt ég geri hér. Ef Colin Powell er ofboðið, er þá skrýtið að mér sé það? Hann ætti þó að vera betur upplýstur um málin en við hin.

Það hefði verið hægt að fara friðsamlegri leið að lausn mála. Það var ekki gert og nú er það væntanlega orðið of seint. Bússi og co hafa verið fullkomlega vanþroska í allri þessari framkvæmd!

Birgir Baldursson 17.11.2004 klukkan 10:24#

- - - 0 0 0 - - -
ég er ekki með persónulegar árásir á þig, veit ekkert hver þú ert eða var á landinu þú býrð,
ég hef enga ástæðu til þess arna... En hitt er annað mál að ég má hafa mínar skoðanir og var bara að tjá mig því ég sá að þetta var síða sem fólk gerir það.
Ef ég er svona treg og fávís og ekki jafn vel í málunum eins og fyrrverandi forsætisráðherra USA Colin Powell (sem sagði sig úr því embætti)má ég samt spyrja : Hví er Bush en forseti Bandaríkjana?? Engin forseti hefur fengið jafn mörg atkvæði. Hann fékk mesta fylgi sem sögur fara af. ÉG er friðasinni og hata stríð jafn mikið og þú, þetta er bara eina leiðinn eins og staðan er í dag. Það er búið að reyna allt annað. Einn kunningi minn sem er á sömu skoðun og þú um þessi mál sagði við mig um daginn að það ætti að taka morðóðasta mann á þessu jarðríki og drepa hann og alla hans fjölskyldu upp til hópa og meinti hann Bush forseta og family....
Þetta er sá sem er nýbúin að segja að hann hataði morð og morðingja...
kv Jonna
kv Jonna

jonna 17.11.2004 klukkan 21:47#

- - - 0 0 0 - - -
Hví er Bush en forseti Bandaríkjana?? Vegna þess að áróðurinn virkar, þú ert lifandi dæmi um einmitt það. darri 17.11.2004 klukkan 22:37#

- - - 0 0 0 - - -
Enn ertu dálítið ómálefnaleg, Jonna. Þetta gæti orðið þér dálítil kennslustund í rökræðum. Sjáðu nú:

1. Þú segir: „ég er ekki með persónulegar árásir á þig...“

Enginn var að halda því fram. Ég sagði það ekki, heldur að þú búir til afkáralega útgáfu af málflutningi mínum til að auðveldara sé fyrir þig að gagnrýna hann. Slíkt er Straw Man. Persónuárásir kallast aftur á móti Ad hominem, en þá er fókusinn færður af því sem til umræðu er yfir á persónu þess sem rætt er við og reynt að finn á henni gagnrýnisverðan flöt. Þótt voðmælandinn sé augljóslega skíthæll ógildir það ekki rök hans og málflutning. Því er ekki heiðarlegt að segja bara „iss það er ekkert að marka þig, þú ert glæpamaður“ eða eitthvað slíkt, þótt viðkomandi sé glæapamaður. Málefnaleg umræða felst í því að halda sig við málefnið.

En þú hefur, þegar hér er komið við sögu, ekki enn gerst sek um Ad hominem. Til hamingju með það.

Jæja, áfram með smjörið:

2. Þú segir: „En hitt er annað mál að ég má hafa mínar skoðanir...“

Það máttu vitaskuld. En það má auðvitað gagnrýna þær, um það snýst málefnaleg umræða öðru fremur. Skoðanir manna eru ekki einkamál þeirra, því þær skila sér út í hegðun og framkomu.

Skoðanir má gagnrýna. Þú ert hér að gagnrýna skoðanir mínar og ekki hleyp ég í vörn og segist bara mega hafa mínar í friði. Nei, endilega hjólaðu í þær, þannig lærum við bæði.

3. Þú segir: „Ef ég er svona treg og fávís og ekki jafn vel í málunum...“

Hvar segi ég þig vera trega og fávísa. Hér gerirðu mér upp skoðanir á ný (Straw Man). Ég sagði einungis að Colin Powell væri augljóslega betur upplýstur um ástandið í Írak en við hin (sjálfur ég meðtalinn). Ef þú túlkar þetta sem árás á gáfnafar þitt þá er þetta alveg jafn mikið árás á mitt eigið gáfnafar.

Darri er búinn að svara spurningu þinni og ég sammála honum. Ég vitna:

"As democracy is perfected, the office of president represents, more and more closely, the inner soul of the people. On some great and glorious day the plain folks of the land will reach their heart's desire at last and the White House will be adorned by a downright moron."

H.L. Mencken (1880 - 1956)

4. Þú segir: „ Það er búið að reyna allt annað.“

Þessu er ég ekki sammála. Það er t.d. ekki búið að reyna það sem ég legg til, er það nokkuð? Í raun er bara búið að reyna eina aðferð, þvinganir og ofbeldi. Og sú aðferð er ekki að virka.

Minnir á foreldra Ned Flanders og uppgjöf þeirra við að ala hann upp: „We have tried nothing and are all out of options, man.“

5. Hér kemur áhugaverðasta argúmentið í þessu hjá þér. Þú segir einhvern kunningja þinn hafa sömu skoðanir og ég og tiltekur svo einhverja ógeðfelda skoðun sem hann hefur á því hvernig meðhöndla skuli Bandaríkjaforseta. Ég spyr: Hvað kemur þetta þessari umræðu við? Ertu að segja að ég hljóti alltaf og í öllum málum að vera á sama máli og vinur þinn? Þú ert að þvæla saman tveimur óskyldum málum og gera mér þar með upp skoðanir.

Þetta er ekki vel fallið til rökræðu, því ég veit sjálfur hvernig ég hugsa. Þú getur ekki sagt mér um það hvernig ég hugsa. En ég get alveg sagt þér að ég er ekki sammála þessum vini þínum í þessum efnum. Ég vil setja forsetann af, en ekki drepa hann.

Eða hvað sagði ekki Thomas Paine: „Drepum kónginn, en ekki manninn.“

Niðurstaða: Þú ert mjög gjörn á að smíða sjálf þína eigin útgáfu af skoðunum viðmælandans og hundskamma hann svo fyrir að hafa þær skoðanir. Passaðu þig á þessu í framtíðinni og þér mun strax ganga miklu betur í rökræðum.

Þú ert alveg óvitlaus og mjög efnileg, en kunnáttan kemur með tímanum. Heiðarleg rökræða er ekkert barnaglingur.

Bestu kveðjur,

Birgir Baldursson 18.11.2004 klukkan 00:28#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com