Miðvikudagur 03. nóvember 2004

Yfirlýsing

Ég, sem starfandi trommuleikari á lendum íslensks tónlistarbransa, gef í dag út þessa yfirlýsingu:

Hér með mun ég fara fram á greiðslu fyrir allan þann trommuleik sem ég tek að mér samkvæmt beiðni. Þeir sem notfæra vilja sér hæfileika mína en treysta sér ekki til að koma til móts við þessa einföldu kröfu vinsamlegast snúi sér annað.

Launaupphæðin í hverju tilviki er samkomulagsatriði, en um hana þarf að semja áður en gengið er til starfa.

Birgir Baldursson kl. 05:03 - efni: tónlist - vísanir (0)



Viðbætur
Nei, hættu nú alveg! Bölvuð frekja er þetta.

Annars ráðlegg ég þér að nota frasa sem einn listamaður sem ég þekki hefur notað með góðum árangri. Hann segir þegar hann er beðinn að vinna ókeypis(sem er oft):

"Myndirðu dirfast að biðja pípulagningamann eða rafvirkja að vinna fyrir þig án þess að borga honum? Nei? Þetta er VINNAN mín, helvítið þitt!"

Tóta Pönk 03.11.2004 klukkan 11:00#

- - - 0 0 0 - - -
ég hélt að þið væruð allir atvinnumenn í vantrú

hanni 03.11.2004 klukkan 15:59#

- - - 0 0 0 - - -
Það kemur sennilega að því, hanni minn, að hægt verði að sinna Vantrú í fullu starfi og á fullum launum :)

Birgir Baldursson 03.11.2004 klukkan 18:15#

- - - 0 0 0 - - -
Mér finnst að þú ættir að láta reyna á þetta. Tími til kominn eftir öll svikin sem þú hefur orðið fyrir.

Sunna 08.11.2004 klukkan 17:30#

- - - 0 0 0 - - -
Styð þig heilshugar í þessu máli.

Baráttukveðja SS SKA.

SS SKA 08.11.2004 klukkan 20:12#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com