Þessi heimur okkar er rugl
Smellið á þessa mynd:

Þetta er mynd tekin með Hubble af bletti í sunnanverðu himinhvolfinu sem er sirka 1/10 af þvermáli tunglsins frá okkur séð. Kíkinum var beint þangað sem fáar eða engar stjörnur úr okkar eigin vetrarbraut væru að flækjast fyrir.
Og hvað sjáum við? 10.000 vetrarbrautir, sumar í allt að 13 milljarða ljósára fjarlægð frá okkur. Ef við vippuðum okkur út fyrir vetrarbrautina okkar og út á „bersvæði“ væri þetta útsýnið í allar áttir.
Hvað á þetta rugl að fyrirstilla?
Birgir Baldursson kl. 03:09
-
efni: dýrðin
-
vísanir (0)
Þetta er náttúrulega bilun! Hversu lítil og ómerkileg getum við eiginlega orðið?
Helgi Briem 11.11.2004 klukkan 09:35#
- - - 0 0 0 - - -
Með þessa ógnarstærð alheimsins í huga, er alltaf jafn gaman að spá í þá staðreynd að á þessari örsmáu plánetu okkar, er að finna ógrynni af afar nákvæmum upplýsingum um grundvallaruppbyggingu alheimsins, frá hinu örsmáa til hins risastóra, upplýsingum sem hafa orðið til á einungis nokkur hundruð árum fyrir tilstuðlan lífs, sem öðlaðist hæfileikann til þess að koma upplýsingum milli kynslóða án hjálpar genanna. Vísindin efla ekki aðeins alla dáð heldur gætu þau allt eins verði grunnurinn að tilgangi lífsins.
- - - 0 0 0 - - -
Alltaf gaman að spökúlera :)
darri 11.11.2004 klukkan 10:45#Já, fyrir okkur mennina gæti þekkingin orðið hinn æðsti tilgangur. Hún sigrar alltaf og við allar aðstæður. Hún er það verðmætasta sem við eigum.
Birgir Baldursson 11.11.2004 klukkan 13:30#
- - - 0 0 0 - - -


