Fimmtudagur 11. nóvember 2004

Kristnar kellíngar

Á hverjum degi hef ég hlakkað til þess að fletta Fréttablaðinu og fylgjast með hinum danska Rocky. Nú er búið að taka það af manni.

Ég geri ráð fyrir að hneykslunargjarnar og fasískar kristnar kellíngar hafi ekki linnt látunum fyrr en búið var að koma honum fyrir kattarnef. Skýring Fréttablaðsins er sú að hann hafi á köflum verið full ærslafullur. Sennilegri skýring er sú að í myndasögunni hefur bæði brugðið fyrir typpum og hlandi.

Sígilt grín í Simpsons er þetta hér: „Think of the children! Somebody think of the children!“ Kristnu kellíngarnar hafa eflaust gargað eithvað þessu líkt í eyra ritstjórans á Fréttablaðinu. Það sem þær fatta hins vegar ekki er þetta: Krakkarnir þola svona lagað alveg ágætlega og hafa húmor fyrir þessu, tja, nema kannski þeir sem aldir eru upp undir verndarvæng kristnu kellínganna, þeir eru væntanlega smitaðir af ofursiðprýðismóðursýkinni. Hverjir aðrir en börn eru það t.d. sem krota typpi á öll skilti sem sýna að bannað sé að fara um með hund? Ég kemst alltaf í gott skap þegar ég sé slíkan vandalisma og skil ekkert í því af hverju bæjar- og borgarstarfsmenn eru að þrífa þetta af. Hverjum er verið að hlífa við þessu, börnunum?

Það eru lítil takmörk fyrir því hvað kristindómur getur unnið mikil skemmdarverk á annars heilbrigðu fólki. Fasísku kellíngarnar eru sjálfar lýsandi dæmi um það.

Við þær segi ég: Lúsen öpp áður en þið farið að skíta hreinum demöntum. Krafan er Rocky aftur á síður Fréttablaðsins!

Birgir Baldursson kl. 15:30 - efni: almennur heilaspuni - vísanir (0)



Viðbætur
Ég er hneykslaður. Hvað næst, Pondus?

Hjalti 11.11.2004 klukkan 16:46#

- - - 0 0 0 - - -
Væri ekki Slippery Slope að ætla það? ;)

Birgir Baldursson 11.11.2004 klukkan 17:36#

- - - 0 0 0 - - -
Æ, mér fannst nú Rocky óttalega leiðinlegur. Sakna hans ekki, held ég. Pondus miklu skemmtilegri.

Helgi Briem 12.11.2004 klukkan 09:35#

- - - 0 0 0 - - -
Það var ekki svo mikið einhver haha-fyndni sem gerði Rocky svona verðmætan í augum mínum. Það var miklu meira hin skefjalausa afhjúpun glansmyndanna. Dæmi: Allt afgreiðslufólk var alltaf með fýlusvip eins og í raunveruleikanum. Og skemmtanalífið var dregið upp nákvæmlega eins og það er, hrátt og nöturlegt, með mígandi fyllibyttum í allar áttir.

Sú list sem flettir hulunni frá augum okkar er sönn.

Birgir Baldursson 12.11.2004 klukkan 13:34#

- - - 0 0 0 - - -
cryptic mining argued guardian alphabetical people:sidelights:stunningly,portals Halverson loans loans http://www.our-money.com/ http://www.our-money.com/ equitable blades unevenness sheltered mirrored payday loans life insurance quote payday loans life insurance quote http://www.amazing-credit.com/ http://www.amazing-credit.com/ cop Darlene.Giddings winded! mortgage current home mortgage rates mortgage current home mortgage rates http://www.grab-mortgage.com/ http://www.grab-mortgage.com/ negatives unavailable! auto insurance alternative student loans auto insurance alternative student loans http://auto-insurance.amazing-credit.com/ http://auto-insurance.amazing-credit.com/ productively,shrieks magazine intrusions Socrates: free credit report free credit report http://free-credit-report.grab-mortgage.com/ http://free-credit-report.grab-mortgage.com/ Lares implicate payday loan debt payday loan debt http://debt.money-lovers.com/ http://debt.money-lovers.com/ regaining!baked Winston Nubia stolen: pay day loans pay day loans http://pay-day-loans.money-lovers.com/ http://pay-day-loans.money-lovers.com/ prototyped!stammerer inspects manuals life insurance improve credit score life insurance improve credit score http://life-insurance.huge-credit.com/ http://life-insurance.huge-credit.com/ alveolar anaplasmosis?replete blackmails forex trading forex trading http://forex-trading.our-money.com/ http://forex-trading.our-money.com/ reticular:crystals easel sputtered Britten! insurance quotes visa application insurance quotes visa application http://insurance-quotes.amazing-credit.com/ http://insurance-quotes.amazing-credit.com/ ... Thanks!!!

debt consolidation and management home loans 19.01.2006 klukkan 19:43#

- - - 0 0 0 - - -

Prjónaðu við









Muna þig?






birgir.com