Gegn ranglætinu
Ég held að flestum okkar sé loksins nóg boðið.
Þráinn Bertelsson skrifar helvíti flotta grein aftan á Fréttablaðið í dag, þar sem hann áfellist sjálfan sig og okkur hin fyrir tómlæti í garð illra verka valdhafanna. Og það er satt, við höfum flest verið allt of sinnulaus, kannski nöldrað aðeins út af þessu við vini og kunningja, en síðan snúið okkur að öðru.
En flestum okkar er núna að verða nóg boðið. Þegar sú staðreynd blasir við að trúfíflið Búss verður í fjögur ár í viðbót í Hvíta húsinu og í kjölfarið birtast stöðugar fréttir frá Fallujah af böðlum Bandaríkjastjórnar, þar sem þeir fremja endalausa óhæfu á írakskri alþýðu, þá er loks komið að því að við breytumst öll í Helga Hóseasson:
Ríkisstjórnin rög og hvinn
rétt af mér vill herja.
Bandarískan blóðhund sinn
býðst hún til að verja.
Helgi hefur um langa tíð ekki getað setið undir þessum viðbjóði og ákært ráðamenn og hið seka samfélag, rétt eins og Þráinn nú. Hann bendir réttilega á að ríksstjórnin geri okkur þegnana samábyrga í ógnarverkum sínum, við berum ábyrgð á blóðinu sem rennur.
Þessi skítastjórnvöld í Bandaríkjunum eru búin að bregðast rangt við allar götur frá svokölluðu 9/11. Í stað þess að skilja sneiðina og hörfa með heri sína úr múslimalöndum, koma á eðlilegu viðskiptasambandi og berjast við hlið Sameinuðu þjóðanna og mannréttindasamtökum fyrir umbótum í heiminum, þá hafa þessi gráðugu og blóðþyrstu svín hegðað sér á fullkomlega vanþroskaðan hátt, vaðið með hervaldi yfir hvað sem fyrir verður og skilið eftir sig blóð, dauða og sorg.
Helvítis viðbjóður.
Ofbeldi kallar á ofbeldi. Sterkasti leikur Bandaríkjarstjórnar nú væri að leggja nður her sinn og mælast til þess sama af öðrum þjóðum. Eini herinn sem við þurfum er friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna. Þann her má efla og einstök ríki geta síðan biðlað til SÞ um að koma á skikki, fari eitthvað úrskeiðis heimafyrir. Bandaríkin ættu að gefa öll hergögn sín Sameinuðu þjóðunum og biðla svo til þeirra um vernd.
Einn her berst ekki við sjálfan sig. Ef heimurinn sameinast um einn her þurfa aðeins þeir sem gripið hafa til ofbeldis að komast í kast við hann.
Þessu geðbilaða vopnaskaki verður að ljúka. Þessari vitfirrtu vígbúnaðarhyggju þarf að linna. Við þurfum alla þá peninga sem nú fara í þessa klikkun til að jafna lífskjör í heiminum, leggja vatnsleiðslur og áveitur, uppræta hungur og drepsóttir, stilla til friðar og efla réttindi hinna kúguðu.
Nú er rétta stundin til að snúa þróuninni við. Nú, þegar allt ærlegt fólk hefur breyst í Helga Hós, er rétti tíminn til að láta í sér heyra. Og við skulum ekki hætta fyrr en breytingin er komin á.
http://fallujapictures.blogspot.com/
Birgir Baldursson 16.11.2004 klukkan 13:28#Ef það stendur eitthvað til þá megið þið reikna með mér.
Vésteinn 17.11.2004 klukkan 00:24#Mig langar eiginlega til að fara að skæla. Ekki endilega vegna fólksins sem er verið að drepa þarna í þessum rituðum orðum, frekar yfir eigin máttleysi. Að geta svo sáralítið gert, hér norður í rasskati - svo fjarri, svo úr tengslum við þessi ósköp. Eitt skal þó aldrei gerast og það er nú ástæðan fyrir að maður legst ekki í tómt þunglyndi - það er að maður reyni ekki að minnsta kosti að gera það litla sem maður getur.Birgir Baldursson 17.11.2004 klukkan 02:21#
http://www.thenausea.com/usa-iraq.html
Birgir Baldursson 17.11.2004 klukkan 02:23#Hvað getum við gert? Það nærtækasta er að fá ríkisstjórnina ofan af stuðningi sínum við blóðbaðið. Við getum m.ö.o. hætt að styðja það. Það væri góð byrjun. Skref 2 væri þá að reyna að fá ríkisstjórnina til að fordæma blóðbaðið og skora á Bandaríkjamenn að draga her sinn út úr Fallujah hið snarasta -- og reyndar út úr Íraq, ef útí það er farið.Birgir Baldursson 17.11.2004 klukkan 10:38#
Terrorismi er í eðli sínu svar við ranglæti og út í hött að svara slíkum viðbrögðum með meira ranglæti.
Birgir Baldursson 17.11.2004 klukkan 16:11#Nú veit ég ekki. Það getur ekki verið rétt að slátra þúsundum manna og leggja borgir í eyði. Okkar geðþekku spjallstjörnur af hægri vængnum sjá þó ekkert athugavert við það. Það var annaðhvort það eða leyfa Saddam að ráða, segja þeir. Já, hvort viltu?Birgir Baldursson 19.11.2004 klukkan 01:51#Að frelsa heiminn er eins og að sigra Saddam
með sakleysissvip og sprengjuregni
Rís þú, unga Íraks merki með þúsund rotnandi líkum.
Hvet alla til að gera eitthvað svipað.
Birgir Baldursson 20.11.2004 klukkan 19:05#


"It is no longer a choice, my friends, between violence and nonviolence. It is either nonviolence or nonexistence"
darri 15.11.2004 klukkan 17:08#--Martin Luther King, Jr.